Page 1 of 1

Hvarfakútur?

PostPosted: Sun 21. May 2006 15:59
by ///Matti
Sælir :wink:
Ég er að spá hvort ég græði eitthvað á að fjarlægja hvarfann undan bílnum (E39 540)?Eða er þetta allt í eitthverjum skynjurum og rugli :oops:
Og myndi hljóðið ekki aukast smávegis??

PostPosted: Sun 21. May 2006 16:05
by Bjarkih
Það náttúrulega minkar mótstöðuna í kerfinu. Þú getur líka fengið þér svokallaðan sporthvarfa, þeir eru opnari.

PostPosted: Sun 21. May 2006 16:07
by ///Matti
:wink: En ég var líka að spá hvort allt fari nokkuð í rugl útaf eitthverjum skynjurum og þess háttar :?:

PostPosted: Sun 21. May 2006 16:16
by Litli_Jón
///Matti wrote::wink: En ég var líka að spá hvort allt fari nokkuð í rugl útaf eitthverjum skynjurum og þess háttar :?:


í svona nýjum bílum fer oftast í í rugla á að setja bara rör á milli en oftast er til einhver búnaður til að setja í til að laga það....

PostPosted: Sun 21. May 2006 16:43
by Geirinn
Haha, hversu oft er talað um hvarfa hér :lol:

Þyrfti að skrifa góða grein um það og gera það sticky en anyways:

Nýir bílar eiga að standast tilskipanir um mengun. Bílar á framleiðsluári 1995 og síðar þurfa að hafa hvarfakút og eiga að vera innan settra mengunarmarka. Við reglulega bifreiðaskoðun eru efni í útblæstri þessara bifreiða mæld og gerðar kröfur um úrbætur ef útblástur er yfir mengunarmörkum.

PostPosted: Sun 21. May 2006 17:11
by srr
Geirinn wrote:Haha, hversu oft er talað um hvarfa hér :lol:

Þyrfti að skrifa góða grein um það og gera það sticky en anyways:

Nýir bílar eiga að standast tilskipanir um mengun. Bílar á framleiðsluári 1995 og síðar þurfa að hafa hvarfakút og eiga að vera innan settra mengunarmarka. Við reglulega bifreiðaskoðun eru efni í útblæstri þessara bifreiða mæld og gerðar kröfur um úrbætur ef útblástur er yfir mengunarmörkum.

Ég "lenti" í þessu í vikunni. Fór með Mözduna mína í fyrsta skipti í skoðun síðan ég fékk hann.
Þá kom í ljós að fyrri eigandi hafði tekið hvarfakútinn undan og sett opið púst út í gegn.
Ég vissi ekkert af þessu og fékk endurskoðun út á þetta. Neyðist til að kaupa mér hvarfakút og breyta pústinu.
Minn bíll er framleiddur 1997 svo hann verður að standast þessa reglugerð sem Geirinn vitnaði í.