bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

e60 felgur á e39 passar ekki !
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=15385
Page 1 of 1

Author:  ice5339 [ Fri 05. May 2006 10:32 ]
Post subject:  e60 felgur á e39 passar ekki !

Sæl.
Ég ætlaði að prófa 17" e60 felgur á e39 540 bílinn hjá mér, en þær pössuðu ekki undir.

Hringurinn sem er innan við boltana er of stór á bilnum til að felgan passi almennilega uppá, þarna munar einhverjum millimetrum.

Er þetta eðlilegt og þá hvað er til ráðs?

Author:  saemi [ Fri 05. May 2006 11:44 ]
Post subject: 

E39 er með stærra center bore heldur en allir aðrir. E60 hefur þá aftur horfið til baka með felgurnar, eru þá orðnar eins og á E34. Spurning samt með offset.

Author:  Danni [ Fri 05. May 2006 12:12 ]
Post subject: 

eina sem mér dettur í hug er að láta renna felgurnar svo að þeir komast uppað. Pabbi lét gera það þegar hann setti Civic felgur á Opelinn....

Author:  Fjarki [ Fri 05. May 2006 19:10 ]
Post subject: 

En hafa menn ekki verið að láta M6 felgur undir E39??

Author:  ice5339 [ Sat 06. May 2006 00:21 ]
Post subject: 

Sæmi hvað er þetta ofsett?

Ég get nefnilega fengið felgurnar á fínu verði, en mínar eru farnar að láta verulega á sjá.

Hérna er smá paint edited mynd af væntanlegu útliti
Image


Versus núverandi útlit.
Image

Felga ein og sér
Image

Það er samt algjör óþarfi að hrósa mér fyrir þessa gríðarlegu myndbreytingahæfni (sorry er slakur í slíku.)

Author:  ta [ Sat 06. May 2006 00:41 ]
Post subject: 

hér er ágætis linkur.
http://www.gruppeb.com/BMWwheels/fitments/

edit, tekið af http://forums.e60.net

Quote:
The offset (ET) of the e39/e60 is 22mm +/- 10mm depending on whether it is front or rear and width of rim. Hub diameter of the e60 is 72.5mm.


en E39 er 74,1
Smá warning, það eru miklar líkur á því að þú fáir
víbring í stýrið ef þú lætur renna þetta,
E39 er viðkvæmur fyrir "shimmy".
ég tala af reynslu. ( gúgglaðu"E39 shimmy")

Author:  bjahja [ Sat 06. May 2006 01:23 ]
Post subject: 

Ég fíla núverandi felgur mun betur, en alltaf gaman að prufa nýja hluti :wink:

Author:  ta [ Sat 06. May 2006 01:46 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Ég fíla núverandi felgur mun betur, en alltaf gaman að prufa nýja hluti :wink:


já alveg sammála, fara bílnum mun betur,, :D

Author:  fart [ Sat 06. May 2006 08:19 ]
Post subject: 

Fjarki wrote:
En hafa menn ekki verið að láta M6 felgur undir E39??


Lykilorðið er.... Replica.. þá getur þú fengið hvaða centerbore sem er.

1x Oem M6 eða M6 felga kostar mucho dineros.

Author:  Fjarki [ Sat 06. May 2006 16:52 ]
Post subject: 

fart wrote:
Fjarki wrote:
En hafa menn ekki verið að láta M6 felgur undir E39??


Lykilorðið er.... Replica.. þá getur þú fengið hvaða centerbore sem er.

1x Oem M6 eða M6 felga kostar mucho dineros.




Okey skil, það er þrælsniðugt.

Munar líka á verðinu :lol:

Author:  Alpina [ Sat 06. May 2006 18:10 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Ég fíla núverandi felgur mun betur, en alltaf gaman að prufa nýja hluti :wink:


Þarna hefur Bjarni ,,,,,smekk,,, sem að margra áliti er án vafa og að öðrum felgum ólöstuðum það al-fallegasta // látlausasta
undir E39+E38

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/