bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E36B50 1992 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=15345 |
Page 1 of 1 |
Author: | Svingur [ Wed 03. May 2006 19:03 ] |
Post subject: | E36B50 1992 |
Má taka hvarfakútinn af þessum ? |
Author: | moog [ Wed 03. May 2006 19:21 ] |
Post subject: | |
Ertu þá að meina E36 bíll með m50 mótor 1992 módel? Ég er með e36 325i sem er með M50B25 mótor 1994 og ég er ekki með hvarfakút og það er í góðu lagi. |
Author: | snorri320 [ Wed 03. May 2006 20:16 ] |
Post subject: | |
held alveg örugglega að það sé ekki hvarfakútur í þessum bílum, einungis einhver millikútur sem bara er þarna. amk var ekki í mínum en hann er ´91 |
Author: | Geirinn [ Wed 03. May 2006 20:32 ] |
Post subject: | |
Svo við endum þessa endalausu umræðu um hvaða árgerðir þurfa að hafa hvarfakúta: Umhverfisstofnun wrote: Nýir bílar eiga að standast tilskipanir um mengun. Bílar á framleiðsluári 1995 og síðar þurfa að hafa hvarfakút og eiga að vera innan settra mengunarmarka. Við reglulega bifreiðaskoðun eru efni í útblæstri þessara bifreiða mæld og gerðar kröfur um úrbætur ef útblástur er yfir mengunarmörkum.
Bifreiðar eldri en 1995 eru ekki allir með hvarfakútum, þó þurfa bifreiðar frá árunum 1986-1995 að vera með kolmónoxíð (CO) í útblæstri undir 3,5% og bifreiðar eldri en 1982 með undir 4,5%. Eldri bílar sem þó eru með hvarfakúta geta því komist í gegnum skoðun þó þeir séu yfir mengunarmörkum. Eftir 1995 hafa bílar þurft að skila innan við 0,5% af CO í hægagangi og innan við 0,3% CO þegar vélin er í 2000 snúningum. Greinin er hér: http://www.ust.is/Mengunarvarnir/Mengunarvarnabunadur/Hvarfakutar/ |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |