Svo við endum þessa endalausu umræðu um hvaða árgerðir þurfa að hafa hvarfakúta:
Umhverfisstofnun wrote:
Nýir bílar eiga að standast tilskipanir um mengun. Bílar á framleiðsluári 1995 og síðar þurfa að hafa hvarfakút og eiga að vera innan settra mengunarmarka. Við reglulega bifreiðaskoðun eru efni í útblæstri þessara bifreiða mæld og gerðar kröfur um úrbætur ef útblástur er yfir mengunarmörkum.
Bifreiðar eldri en 1995 eru ekki allir með hvarfakútum, þó þurfa bifreiðar frá árunum 1986-1995 að vera með kolmónoxíð (CO) í útblæstri undir 3,5% og bifreiðar eldri en 1982 með undir 4,5%. Eldri bílar sem þó eru með hvarfakúta geta því komist í gegnum skoðun þó þeir séu yfir mengunarmörkum. Eftir 1995 hafa bílar þurft að skila innan við 0,5% af CO í hægagangi og innan við 0,3% CO þegar vélin er í 2000 snúningum.
Greinin er hér:
http://www.ust.is/Mengunarvarnir/Mengunarvarnabunadur/Hvarfakutar/