Page 1 of 1
Skipta um spindilkúlu á E-36 án þess að nota pressu..

Posted:
Tue 02. May 2006 16:51
by hallei
Farin spindilkúla hjá mér og er ég að pæla í hvort að það sé hægt að skipta um hana án þess að nota þessa pressu sem þeir segja að maður þurfi.....

Posted:
Tue 02. May 2006 20:30
by saemi
Já, það er best að taka hana bara úr með vasahníf, svo þegar þú setur nýja í þá bara að festa hana með tyggjói.
Nei en svona án gríns, þá er vonlaust mál að taka svona úr spyrnu án pressu. Þú getur gert þetta með að skipta um alla spyrnuna væntanlega, en það kostar meira en bara kúlan. Oft er ekki gert ráð fyrir að skipt sé um kúlu, bara spyrnuna. Annars veit ég ekki nákvæmlega hvernig þetta er í E36.

Posted:
Tue 02. May 2006 21:32
by Bjarki
Getur tekið þetta úr með borvél, stórum bor, járnsög, sleggju og smá þolinmæði. Svona 15mín hvoru megin.
En svo verður að fara með þetta og láta pressa nýju spindilkúlurnar í, hef verið að borga klink fyrir það, kannski 1500-2000kr.

Posted:
Wed 03. May 2006 00:00
by Svingur
lol Bjarki seigur að redda sér með fullt af verkfærum ,en í hvaða röð notaru þau

spindilkula

Posted:
Wed 03. May 2006 00:01
by hallei
Grunaði það ég hendi honum bara upp á verkstæði á morgun, þeir sögðu að þeir væru ekki nema 1 tíma að skipta um þetta..


Posted:
Wed 03. May 2006 00:20
by Halli
þetta er ekkert mál að gera þó að maður er ekki með pressu EN samt að gera þetta með smá kunáttu í huga
Getur tekið spyrnuna úr og farið með til TB

Posted:
Wed 03. May 2006 20:31
by lubenz007
Þeir tóku 1000 kall fyrir að troða nýrri kúlu í.
Það er fjandi erfit að ná henni úr og setja í.
mbk.

Posted:
Thu 04. May 2006 22:44
by BMW_Owner
sleggjan og úr með spindilinn og svo bara skrúfstykki ekkert ma´l smá tíma þess virði;)
kv.BMW_Owner
