bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Að skipta um perur í mælaborði á E34 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=15236 |
Page 1 of 1 |
Author: | D@BBI [ Thu 27. Apr 2006 23:02 ] |
Post subject: | Að skipta um perur í mælaborði á E34 |
Er erfitt að skipta um perurnar hjá hitamælinum og sjálfskiptingunni, kannski eitthver veit um einhvern 'Link' sem hann getur gefið upp um þetta?? |
Author: | Geirinn [ Thu 27. Apr 2006 23:40 ] |
Post subject: | |
Ef að þetta er eins og í E30 sem ég tel vera góðar líkur þá er ein pera sem lýsir upp bensínmælinn og hraðamælinn og önnur sem lýsir upp snúningsmælinn og hitamælinn. Ef maður losar plastið sem er yfir pedulunum þá eru þetta tvö perustæði sem sjást sem líta c.a svona út ( / ) sem maður snýr. Það er ekki skrúfgangur heldur er nóg að snúa eins og hálfan hring eða svo. Hin ljósin eru þarna líka, nema þau eru aðeins öðruvísi, þá er vír sem liggur í perustæðið að mig minnir. Sé þetta öðruvísi þá lýsum við hér með eftir lýsingu á því ![]() |
Author: | D@BBI [ Sat 29. Apr 2006 01:17 ] |
Post subject: | |
ég er góður að taka hluti í sundur, enn þegar það er komið að þvi að setja þá aftur saman þá bara ??? Ennfremur ég ætla að grúska aðeins í þessu. |
Author: | elli [ Sat 29. Apr 2006 12:03 ] |
Post subject: | |
Þessi er ágætur http://www.bmwe34.net/E34main.htm Síðan er þessi flottur neðarlega hægramegin er fullt af E34 og E32 (mikið sama dótið) linkum http://www.e38.org/e32 kv. elli |
Author: | Geirinn [ Sat 29. Apr 2006 12:17 ] |
Post subject: | |
Þar sem enginn hefur gefið sér tíma í að svara þessari grein (nema Elli) almennilega þá fór ég og athugaði málið aðeins. Þetta er út frá þessari síðu sem Elli sýndi hér fyrir ofan: http://www.bmwe34.net/e34main/maintenance/electrical/capacitors.htm > http://home.online.no/%7Est-arhol/enge32speedo.htm Mér sýnist maður þurfi að opna mælaborðið til að skipta um perur og að þær séu þrjár en ekki tvær eins og í E30. Þar sem rauðu hringirnir eru opnar maður mælaborðið. Á E30 væri þetta aðeins ofar og mjög svipaðar skrúfur eru í raun perustæðin. Líta nánast alveg eins út. Hins vegar þegar búið er að opna mælaborðið þá blasir þetta við: Þarna eru þrjú perustæði á hvíta hlutanum, þau líta alveg eins út og á E30, athuga samt að þetta er opið E32 mælaborð en sjálfsagt mjög svipað E34 borðinu ef ekki eins. Þarna sést svo hvar skrúfurnar fyrir mælaborðið eru. Spurning hvort það séu skrúfur undir eða hvort þetta fellur bara í innréttinguna en þú ættir að vera mjög nálægt þessu ef þú ferð eftir þessum myndum. Ef það er listi yfir stýrinu (undir mælaborðinu) eins og í E30 þá var mér sagt að maður spennir hann bara af. Á E30 eru tvær skrúfur þar á bakvið, sitt hvoru megin. Vona að þetta hjálpi. |
Author: | elli [ Sat 29. Apr 2006 12:55 ] |
Post subject: | |
þetta er flott svar hjá þér hér að ofan. Mér finnst að við sem erum búnir að vera hérna á spjallinu lengi verðum að passa svoldið og gefa okkur tíma í að svara þeim sem sem eru nýrri hér á spjallinu með því að benda þeim á síður og svo framvegis. Þó svo þetta séu kanski síður sem við erum búinir að þekkja lengi þá er ekki víst að allir viti um þær og þær hafa oft að geyma nytsamlegar upplýsingar. Flott svar hjá þér Geirinn. kv. elli |
Author: | Geirinn [ Sat 29. Apr 2006 23:28 ] |
Post subject: | |
![]() Reif E30 borð úr bíl í dag. Eini munurinn á greininni minni væri þá þessi: Listinn sem er fyrir ofan stýrið, undir mælaborðinu er festur með tveimur handskrúfuðum boltum sitt hvoru megin, maður kemst að þeim ef maður tekur spjaldið fyrir ofan pedalana af. Annars er þetta pretty much straight forward. Rifum reyndar stýrið úr til að auðvelda vinnuna, það var 1x22mm ró ef maður spennir flautulokið af með skrúfjárni (mjööög mismunandi eftir stýrum þó hvernig maður kemst undir þetta allt saman). Rafmagnsleiðslurnar eru dáldið tricky. Það eru svört hlíf yfir snúrunum sem maður fer með skrúfjárn undir og kippir upp. Þá getur maður unpluggað tengjunum auðveldlega. Svarta stykkið losnar btw. ekki frá heldur helst fast við hausinn á snúrunni. Svo er bara spurning hvort þetta sé eins í E34 ![]() |
Author: | D@BBI [ Tue 02. May 2006 22:59 ] |
Post subject: | |
Ég þakka fyrir upplýsingarnar,þær eru eftir að koma sér að notum ![]() |
Author: | Svingur [ Wed 03. May 2006 00:58 ] |
Post subject: | |
Jabb sömuleiðis takk ![]() |
Author: | max_ice [ Wed 03. May 2006 17:06 ] |
Post subject: | |
fann alveg ágætis lýsingu á því hvernig á að skipta um perur í mælaborðinu http://www.bimmernut.com/~billr/images/airBagAndBulbs_files/airBagAndBulbs.html vona að þetta hjálpi |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |