Sælir.
Þannig er mál með vexti hjá mér að ég lét skipta um rafhlöðu í fjarstýringunni að bílnum í B&L. Eftir að það var gert hefur þjófavarnarkerfið farið í gang oft eftir að ég er nýbúinn að læsa bílnum.
Ef ég læsi með fjarstýringunni kemur þetta undantekningalaust og í svona helming tilfella ef ég læsi með lyklinum sjálfum.
Þegar ég læsi og opna með fjarstýringunni kemur "Fünkschlussel Batt." sem mér skilst að þýði að ég þurfi að skipta um rafhlöðu þar sem hún á að verða tóm. Ég skil það ekki þar sem ég var að láta skipta um rafhlöðu.
Þessi skilaboð komu á skjáinn hjá mér fyrir nokkru síðan og varð til þess að ég lét skipta um rafhlöðu. Þá fór einmitt kerfið í gang í tíma og ótíma.
Þarf að láta endurforrita fjarstýringuna? Veit ekki alveg hvað málið er með þetta.
