Page 1 of 1
Misræmi

Posted:
Tue 18. Apr 2006 20:06
by mattiorn
Þannig er mál með vexti að það blikkaði ljós í mælaborðinu sem sagði að ég þurfti að fara með hann í smur. En það var gert fyrir nokkrum vikum. Spurningin er því þessi: get ég stillt þetta saman einhvernveginn svo þetta virki saman? þannig að það komi Oilservice ljósið á 5000 km fresti eða svo...
kv.
Matthías Örn

Posted:
Tue 18. Apr 2006 20:08
by saemi
Og bifreiðin er ....? E30???

Posted:
Tue 18. Apr 2006 20:14
by arnibjorn
Já þetta er væntanlega E30 cabrio,
en ég held að það sæe hægt að fara með bílinn annað hvort í tb eða bogl og þeir stilli þetta uppá nýtt. En þar sem að þú ert á ak þá veit ég ekki alveg..


Posted:
Tue 18. Apr 2006 20:58
by mattiorn
Jamm E30 cabrio it is
Þegar ég fór með hann og lét lesa af honum þá er eins og þetta hafi núllast eða eitthvað þ.e. öll ljós slokknuðu, en nú er komið þetta Oilservice og gula ljósið logar...

Posted:
Tue 18. Apr 2006 21:04
by saemi
Þá eru batteríin í mælaborðinu orðin slöpp, eða prentplatan hreinlega ónýt í því. Hægt að kaupa ný batterí og lóða í, ódýrasta lausnin en ekki 100% fix. Annars að kaupa aðra plötu.

Posted:
Thu 20. Apr 2006 00:21
by Dr. E31
Inspection (oil service) ljósin voru með svona disco fíling í 325ix, dugði fyrir mig að rífa þetta úr og lóða upp á nýtt. Mig minnir að batteríið hafi verið ok.