Page 1 of 1
Viðvörunarljós

Posted:
Mon 17. Apr 2006 19:18
by RamLing
Ég var að keyra áðan og tók eftir því að það kveiknaði ljós í mælaborðinu hjá mér. Þar sem að bæklingurinn minn er á helv.. þýsku þá skil ég ekki orð að því sem að stendur.
Þetta er hringur með merkjum sitthvoru megin við og heitir :
Bremsbeläge
Die Warnleuchte fur Bremsbeläge leuchetet bzw .. oflr.
Hvað þýðir þetta ?
(BMW 523i '00)

Posted:
Mon 17. Apr 2006 19:21
by finnbogi
út í bíl skrifa niður þýska orðið
og klikka hér -->
http://www.google.is/language_tools?hl=en

Posted:
Mon 17. Apr 2006 19:23
by Bjarkih
Ég myndi giska á að þú þurfir að fara að skipta um bremsuklossana.

Posted:
Mon 17. Apr 2006 20:02
by RamLing
Ég tók bremsurnar í gegn að aftan fyrir rúmum 3 vikum, skipti um klossa að aftan + handbremsuborða. Liðkaði að framan, getur ekki verið að skynjarin hafi dottið úr sambandi ?
Brake Linings þýðir þetta

Posted:
Mon 17. Apr 2006 21:30
by basten
Það er mjög líklegt að bremsuskynjarinn hafi dottið úr sambandi.
Keyptirðu ekki örugglega nýjan þegar þú skiptir um í bremsunum?

Posted:
Tue 18. Apr 2006 00:05
by RamLing
Jú, ég fékk nýjan að aftan, getur verið að hann hafi farið í hengla þegar að ég liðkaði að framan, kíppi bilnum bara á lyftu á morgun og athuga..