Page 1 of 2

SmurOlía á M20

PostPosted: Tue 11. Apr 2006 17:08
by HPH
Með hvað SmurOlíu mæliði með á M2b25? 10W-40 hvaða??? (helst frá hvaða Bensínstöð)

PostPosted: Tue 11. Apr 2006 18:12
by aronjarl
ég var með bæði Shell helix+ 10/40

Esso Ultra 10/40 það er fint

ef þú keyrir bílinn alltaf þannig að hann nær að hitna þá er fint að skifta um þetta á svona 10þús km fresti

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 00:27
by Chrome
URR!!! aldrei láta líða meir en 5000 á milli olíuskipta...olíurnar eru alveg fínar meira en síurnar ekki! lágmark að skipta um síu þá :) Comma olían frá bílanaust er líka fín :)

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 01:11
by HPH
Chrome wrote:URR!!! aldrei láta líða meir en 5000 á milli olíuskipta...olíurnar eru alveg fínar meira en síurnar ekki! lágmark að skipta um síu þá :) Comma olían frá bílanaust er líka fín :)

5000km fresti? ég hef heirt það að olían sé best á milli 5 til 10.000km eftur að hún var sett á :?

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 01:23
by Chrome
haha hvernig á það að geta gerst ;) olían er best ný en glatar eiginleikum sínum smám saman :) það eru til sérstakar Long life olíur sem endast vel og eru ætlaðar á nýja bíla en venjuleg 10-40 er bara sama gamla :) að vísu þekki ég einn sem notar hana alltaf í 15.þús og líkar vel...en aftur á móti fer ný sía í á 5.þús km fresti undantekningar laust :)

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 01:29
by Lindemann
sían á alveg að endast vel 10þús km ef keyrslan er þokkaleg....annað mál ef bíllinn er mikið keyrður kaldur og stuttar vegalengdir, þá þarf að skipta um olíu og síu oftar.

Comma olían frá bílanaust hef ég heyrt að sé nákvæmlega sama olían og esso olían.

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 01:38
by Knud
HPH wrote:
Chrome wrote:URR!!! aldrei láta líða meir en 5000 á milli olíuskipta...olíurnar eru alveg fínar meira en síurnar ekki! lágmark að skipta um síu þá :) Comma olían frá bílanaust er líka fín :)

5000km fresti? ég hef heirt það að olían sé best á milli 5 til 10.000km eftur að hún var sett á :?


Það er bara rugl! Þarf ekkert að "tilkeyra" olíuna :wink:

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 08:18
by Hannsi
ég er búinn að keyra minn Touring rétt rúma 1400 km síðan ég fékk hann í desember og fór með hann í smurningu þá og þarf að fara aftur núna :)

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 08:33
by Arnar
Hannsi wrote:ég er búinn að keyra minn Touring rétt rúma 1400 km síðan ég fékk hann í desember og fór með hann í smurningu þá og þarf að fara aftur núna :)


Afhverju ?


Síurnar endast lengur en olían, þær kosta rétt rúman þúsundkall.. þannig
það borgar sig að skipta í leiðinni.

Eruð þið ekkert að nota þynnri olíu á þessar vélar ? svona eins og 5w/30 olíu eða mobile 0w/40, er hún of þunn ?

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 08:43
by gstuning
ekki nota ö/40w á M20, það lekur bara með sealunum

10-40w hentar best

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 15:55
by HPH
Knud wrote:
HPH wrote:
Chrome wrote:URR!!! aldrei láta líða meir en 5000 á milli olíuskipta...olíurnar eru alveg fínar meira en síurnar ekki! lágmark að skipta um síu þá :) Comma olían frá bílanaust er líka fín :)

5000km fresti? ég hef heirt það að olían sé best á milli 5 til 10.000km eftur að hún var sett á :?


Það er bara rugl! Þarf ekkert að "tilkeyra" olíuna :wink:

Þetta kom kanski frekar asnalega út hjá mér en það var bifvéla virki sem sagði að besta nýtingin eða eitthvað man ekki hvað það er væri þegar hún væri keirð þetta. (get ekki líst þessu betur...Allavegna kom hann með góð rök fyrir þessu)

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 19:16
by Logi
Olía er best þegar hún er ný!

Eða ætli það séu settar "tilkeyrðar" olíur á kappakstursbíla t.d.?????

PostPosted: Wed 12. Apr 2006 20:07
by aronjarl
rétt hjá Gunna að 0-40 er allt of þunn á þessar vélar.

10.000km er FINT ekkert að því ef þú ert að skifta um á 4.000-5.000 km fresti eru bara að bruðla :wink:

Ef bíllinn er hreyfður þannig að hann nær ekki að hitna alltaf þá safnast raki í olíuna og annar skítur.

það er mælt með 10-40 eins og ég sagði ætti ekki endilega að skifta frá hverjum það kemur þetta er næstum allt sama tóbakið.



kveðja...

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 12:39
by Mpower
Ég hef notað Esso Ultron 5-30 með fínum árangri, hún rennur vel í miklu frosti sem mér finnst skipta máli hér. Skipti um á ca 10000 km olíu+síu.

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 14:09
by Angelic0-
Castrol Syntec 0w30 er það eina sem að fær að fara á mótorinn minn.....

Virðist ekki brenna dropa (auðvitað brennir hún einhverju) né lekur olíunni...