bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bíllinn er í fucki
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=1481
Page 1 of 2

Author:  O.Johnson [ Sat 10. May 2003 18:22 ]
Post subject:  Bíllinn er í fucki

Ég var að láta yfirfara bílinn minn hjá umboðini og fékk nánast heila bók um það sem er að bílnum :cry:
Það sem mér var ráðlagt að gera er eftirfarandi:

Viðgerðir:

Setja nýtt pústkerfi undir bílinn eða laga það gamla
Skipta um allar hjólalegur
Skipta um alla felgubolta á öllum hjólum
Skipta um allar felgurær á öllum hjólum
Skipta um alla dempara
Laga bilun - bíllinn startar ekki rétt
Laga bilun - lekamengun frá vél
Skipta um olíu á vél
Skipta um olíusíu
Skipta um vökva á sjálfskiptingu
Skipta um pakkningu á sjálfskiptingunni - á pönnunni
Skipta um vökvasíu í sjálfskiptingunni
Skipta um kerti
Skipta um bensínsíu
Skipta um tímareim
Skipta um vatnslás
Skipta um allar hosur og slöngur í vélarrýminu
Skipta um kælivökva
Stilla ventlabilið
Skipta um heddpakningu
Skipta um loftsíu
Skipta um kertaþræði
Skipta um vökva fyrir aflstýrið
Hreinsa burt sull sem er í soggreininni
Skipta um innsprautunarspíssa
Skipta um súrefnisskynjara
Laga hitan í miðstöðinni
Stilla gang vélarinnar
Laga strekkjarana í öllum beltunum
Skipta um peru í loftinu
Laga lekann í skottinu
Laga hitann í afturrúðunni
Skipta um rúðuþurkur
Skipta um hægri aðalljósalugt
Skipta um vinstri stefnuljósalugt
Skipta um hlífarnar fyrir neðan aðal - og stefnuljósalugtirnar
Laga grillið eða skipta um það
Stilla hurðarpósta á vinstri hurð að framan
Laga húddið eða skipta um það
Skipta um spindilkúlur
Skipta um öxulhosur
Laga bilun - bíllinn bremsar ekki rétt
Skipta um bremsuklossa að framan
Skipta um öll bremsurör
Skipta um bremsudælur að aftan
Setja nýjan bremsuvökva á kerfið
Laga handbremsuna
Rétta undirvagninn - allt sem er beigglað
Riðverja undirvagninn - þar sem þarf
Ljósastilla

Þetta er bara hræðilegt :( Þetta mun öruggleg kosta svona 2 - 300 þúsund í varahluti, ef ekki meira :cry: Ég get gert við þetta allt saman sjálfur á niðr á verksæði þannig að ég þar sem betur fer ekki að borga fyrir vinnuna, bara varahlutina sem kosta alveg nógu mikið :(

Author:  saemi [ Sat 10. May 2003 18:35 ]
Post subject: 

Vá,, það hefur nú kostað nóg að búa til þennan lista :)

Þetta er sárt! En það hlýtur nú að hafa verið augljóst með allavega helminginn af þessu!

Sæmi

Author:  bjahja [ Sat 10. May 2003 18:45 ]
Post subject: 

Þetta er svolítið svakalegt, en margt af þessu er bara að skipta um vökva og flest ekkert rosalega dýrt, skynjarar, perur, rúðurþufkublöð og annað. En samt örugglega ekki gaman að fá svona lista í hendurnar. :?

Author:  hlynurst [ Sat 10. May 2003 18:51 ]
Post subject: 

Blessaður vertu... keyptu þér bara nýjan. :)

En svona að öllu grínu slepptu þá held ég að þetta sé lengsti listi af hlutum sem þarf að laga á bíl. Og djöfull er þetta nákvæmt!

Author:  gstuning [ Sat 10. May 2003 19:26 ]
Post subject: 

Þú þarft ekkert að gera allt strax 1-2 og 3

Margt hægt að gera svona rólega og afslappað

Svo þarf að gera allt þetta einhvern daginn hvort sem er.

Author:  Benzari [ Sun 11. May 2003 00:33 ]
Post subject: 

:shock: :shock: :shock: Hvernig fékk þessi bíll skoðun í fyrra spyr ég nú bara??? Varla fer þetta allt á nokkrum mánuðum?

Author:  rutur325i [ Sun 11. May 2003 01:32 ]
Post subject: 

:roll: :roll: :roll: :roll: :roll: :roll: :roll: I wonder why.....

samt ekki nógu gott , þú getur já eins og þú sagðir gert við þetta uppí ræsi svo enginn vinna er rukkuð fyrir það svosem en ég mæli með því að brenna þennan lista og selja bílinn :!: vaar ekkert sett úta hurðaspjaldið farþegamegin frammí ? :P

Author:  O.Johnson [ Sun 11. May 2003 01:59 ]
Post subject: 

Ég ætla ekki að selja bílinn strax. Kanski eftir sumarið þegar maður er búinn að gera eitthvað við hann til að fá meira fyrir hann og búinna að vinna sér inn einhvern pening til að geta kanski keypt að eins dýrai og betur með farinn bíl. Nei það var ekkert sett út á hurðarspjaldið, það er smávægilegt.

Author:  Haffi [ Sun 11. May 2003 09:27 ]
Post subject: 

Guð ég held ég sé kominn að niðurstöðu í málinu...
það er eitthvað að bílnum þínum og MÉR !!
Ekki ennþá sofnaður :)

Author:  oskard [ Sun 11. May 2003 13:11 ]
Post subject: 

Ef að það er ekki hugsað vel um bílinn í langann tíma verður
listinn að sjálfsögðu langur.

Og ég sé ekki tilgang í að lemja gólfið niður nema að það sé
bunga sem böggar þig einhverstaðar.

Mér finnst þessi list ekkert athugaverður og í raun mjög eðlilegur.

Author:  Gunni [ Sun 11. May 2003 13:53 ]
Post subject: 

hvernig bíll er þetta ?

Author:  rutur325i [ Sun 11. May 2003 14:15 ]
Post subject: 

þetta er mazda 323

Author:  bebecar [ Mon 12. May 2003 09:10 ]
Post subject: 

Hvað er þessi bíll eiginlega gamall?

Ég var í Mözdu 323 fyrir tveimur vikum sem er ekinn 220 þúsund og í toppstandi!

Author:  GHR [ Mon 12. May 2003 12:02 ]
Post subject: 

Ég bara spyr en ertu nokkuð að ýkja eða plata okkur héra :? Það er ekki fræðilegur möguleiki að einn bíll geti verið svona ÓNÝTUR eða allavega ekki fengið akstursbann :?
Ég á allavega erfitt að trúa þessu, en ef þetta er rétt þá held ég að þú fáir verðlaunin í að eiga ónýtasta bíl á Íslandi :lol:
(en þetta er nú síðan bara MAZDA :wink: )

Author:  bjahja [ Mon 12. May 2003 14:54 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Hvað er þessi bíll eiginlega gamall?

Ég var í Mözdu 323 fyrir tveimur vikum sem er ekinn 220 þúsund og í toppstandi!


Kunningi minn á 323, mælirinn í honum hætti að snúast í 150þ. en hann var að reikna hvað hann væri mikið ekinn og hann sagði að hann væri kominn eithvað áleiðis að 300.000km.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/