bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Leki í bensíntanki https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=14771 |
Page 1 of 1 |
Author: | Geirinn [ Fri 31. Mar 2006 00:20 ] |
Post subject: | Leki í bensíntanki |
Sælir. Nú er eitthvað í kringum bensíntankinn hjá mér (aftan á bensíntanknum hægra megin) farið að leka... og svona.. frekar hressilega miðað við bensín. Spurningin er.. hversu mikil hætta (ef einhver) er að keyra þegar þetta er svona ? Þetta dropast út hægt... en eftir smá tíma er kominn góður pollur. ![]() Þar sem bensínið fer ofan í tankinn (vinstra megin aftaná). ?????? ![]() ![]() Með von um góð og fljót svör, kveðja ![]() |
Author: | Geirinn [ Fri 31. Mar 2006 10:32 ] |
Post subject: | |
50 views og ekkert reply. Awwww ![]() Verður allavega kíkt á þetta á eftir. Lekur ennþá og allt í hassi... kem allavega með update á þetta fyrir áhugasama. Má samt endilega koma með komment á þetta. |
Author: | Hannsi [ Fri 31. Mar 2006 10:55 ] |
Post subject: | |
gerðist svipað á fimmunni minni þá var gat á bensín röri. Er ekki viss hvort það sé bensín rör á þessum stað sem þú seigir að leki þannig að ég veit ekki hvað þetta gæti verið |
Author: | Geirinn [ Fri 31. Mar 2006 10:58 ] |
Post subject: | |
Neim það er spurning. Öll "pannan" undir bensíntanknum... þ.e. þetta svæði þar sem ég er að tala um er bensínblautt þannig ég er ekki alveg klár á því hvaðan það kemur nákvæmlega. Hallast samt að því að þetta sé aftaná. Hins vegar er líka spurning hvort að hosuklemman sem heldur rörinu þar sem maður setur bensínið á bílinn sé farin og að það hætti að leka þegar bensínið er komið niðurfyrir rörið. Bensínmælirinn sýnir 50 L núna og það lekur ennþá (reyndar parkeraður í brekku með nebbann niður þannig að það ættu að vera enn meiri líkur á því að lekinn stoppi við það).... Ohh þetta er svo gaman ![]() |
Author: | Hannsi [ Fri 31. Mar 2006 11:05 ] |
Post subject: | |
ef þú kæmist undir hann þá ættir þú að geta þurkað allt bensínið og reynt að sjá hvaðan lekinn kemur. annars þá var soldið augljóst hvar bensín lekinn var hjá mér því að það var farið að kristallast í kringum gatið á rörinnu ![]() |
Author: | @li e30 [ Fri 31. Mar 2006 21:50 ] |
Post subject: | |
Best er að taka tankinn úr , ef þú hefur aðstöðu til þess, frekar erfitt að greina hvar lekur nema að kippa honum undann ... Það er lítið mál að taka hann undann, þarft að ná skaftinu úr , og svo losa slöngur og annað sem tengist tank elementinu, og þá er bara eftir að losa 5 eða 6 skrúfur... Ef að gatið er lítið þá skolaru bara tankinn vel að innan með vatni og lóðar svo í.. Ef gatið er í stærri kantinum þá er best fyrir þig að kaupa nýjan tank .. kostar ekkert svo mikið, held að það sé eitthvað í kringum 20 þús .. þori samt ekki að fullyrða neitt. |
Author: | Geirinn [ Tue 04. Apr 2006 00:04 ] |
Post subject: | |
Já. Kiddi tók þetta að sér.. gallinn er bara að þetta er fjandi ryðgað, þ.e. stúturinn sem maður dælir ofan í og endar í kútnum. Rétt áður en það endar í kútnum er hosuklemma sem lekur þrátt fyrir tilraunir til að gera við það. Næsta mál er að prófa að pússa þetta upp og festa betur. Ef það gengur ekki þá fer ég í að finna mér nýjan tank. Fjandans vesen á þessu drasli (á einhver tank sem hann er til í að selja ? => EP). |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |