bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Beintenging á radarvara
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=14639
Page 1 of 1

Author:  ice5339 [ Thu 23. Mar 2006 01:38 ]
Post subject:  Beintenging á radarvara

Ég ákvað að beintengja radarvaran við rafkerfið, en vildi hafa hann ofarlega, enda er mælt með því.

Ég fann þessa síðu
http://www.ideaphile.com/bmw/v1/index.html
þar sem kennt er hvernig hægt er að tengja radarvara við einhverjar snúrur sem eiga að notast til að tengja bílskúrsopnara eða svoleiðis í bílinn.
Ég opnaði allt þarna uppi og ekki gat ég fundið þessar lausu snúrur eins og í greininni.

Ég reddaði þessu nú að lokum og núna slekkur varinn á sér þegar ég drep á bílnum auk þess sem það er engin súra sem liggur yfir allt mælaborðið osf.
Það þurfti samt smá krókaleið.

En ég er samt ekki alveg að skilja af hverju þessar umræddu snúrur sýna sig ekki hjá mér, það voru ótal manns á þessu forumi sem fundu þessar snúrur og tengdu svona apparat ekkert mál.

Image

Image

Author:  pallorri [ Thu 23. Mar 2006 01:39 ]
Post subject: 

Mjög snyrtilegt hjá þér ;)

Author:  ice5339 [ Thu 23. Mar 2006 02:15 ]
Post subject: 

Já takk fyrir það.

Ég var að verða brjálaður á gormasnúrunni sem fylgdi með, sem var líka með einhverju ljósi og alles sem var alltaf að pirra mig í myrkri.
Auk þess sem snúran lá alltaf þvert yfir mælaborðið og gerði það líka svo augljóst að það væri radarvari í bílnum (ekkert stórmál auðvitað) en samt snyrtilegra að hann sé ekki hrikalega áberandi.

Þá virðist sígarettukveikirinn í e39 alltaf vera í gangi, þannig að radarvarinn var alltaf í gangi þegar bíllinn var ekki í gangi (maður er ekki alltaf að slökkva á þessum hlutum manually).
En núna þá slokknar á varanum um leið og ég drep á bílnum.

Bara gott mál

Author:  Angelic0- [ Thu 23. Mar 2006 02:22 ]
Post subject: 

sami staður og ég valdi :)

nice pick :)

En ég þarf að beintengja svona hjá mér :)

Author:  Beggi [ Thu 23. Mar 2006 23:03 ]
Post subject: 

þetta er snilld treysti mér bara ekki í svona heh

Author:  finnbogi [ Thu 23. Mar 2006 23:44 ]
Post subject: 

já ég gerði þetta líka það sukkar að hafa hann svona með gorma snúrunni út um allt

og líka hann fær bara betra signal svona uppá að ná að picka upp lögguna fyrr þegar
hún er að mæla yfir hæðir þá pickar hann hana upp þó maður sér hana ekki

ég fékk mér svona snúru nema hún er með takka sem ég setti í inréttinguna
þannig ég þurfi ekki að teygja mig alltaf að raddarvaranum og ýta á mute
þegar hann er að píppa á einhverja hurða geisla

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/