Ég ákvað að beintengja radarvaran við rafkerfið, en vildi hafa hann ofarlega, enda er mælt með því.
Ég fann þessa síðu
http://www.ideaphile.com/bmw/v1/index.html
þar sem kennt er hvernig hægt er að tengja radarvara við einhverjar snúrur sem eiga að notast til að tengja bílskúrsopnara eða svoleiðis í bílinn.
Ég opnaði allt þarna uppi og ekki gat ég fundið þessar lausu snúrur eins og í greininni.
Ég reddaði þessu nú að lokum og núna slekkur varinn á sér þegar ég drep á bílnum auk þess sem það er engin súra sem liggur yfir allt mælaborðið osf.
Það þurfti samt smá krókaleið.
En ég er samt ekki alveg að skilja af hverju þessar umræddu snúrur sýna sig ekki hjá mér, það voru ótal manns á þessu forumi sem fundu þessar snúrur og tengdu svona apparat ekkert mál.
