Aron Andrew wrote:
Bíllinn minn hefur verið með svolitla stæla við mig síðan ég fékk hann, það ýskrar alltaf í viftureiminni og dótinu þar í kring.
Ég fór með bílinn í TB fyrir jól, og þá skiptu þeir um viftureim, og héldu að þetta væri bara vegna þess að hún væri orðin slitin. En svo 2 dögum seinna þá kom ýskrið skemmtilega aftur.
Ég renndi með bílinn í TB og þá var skipt um öll hjólin sem reimin liggur á og strekkjarann. Ekki hætti ýskrið þá.
Í þriðja skiptið sem ég fór með bílinn í TB þá vissu meistararnir þar ekki alveg hvað gæti verið að valda þessu, svo þeir skiptu aftur um viftureim, hljóðið hélt áfram og þeim datt í hug að skipta um kælivökva, og þá loksins hætti ýskrið og hefur ekki heyrst neitt aukahljóð í bílnum síðan.
Þangað til í gærkvöldi, þá kom þetta ægilega ýskur aftur, það ýskrar ekki í svona 3 mín eftir að maður startar bílnum, en svo kemur það, ýskar alveg frá 1000 snúningum og uppúr bara.
vitið þið nokkuð hvað í fjandanum getur verið að valda þessu?
Gæti þetta verið að koma aftur vegna þess að það var skipt um kælivökva þegar ég fór með bílinn í smurningu á föstudaginn?
Með von um góð svör,
Aron Andrew
Lekur bíllinn þinn einhverju á þessu svæði sem reimin er á ? Spurning hvort að smá olía á reim gæti látið hana ískra svona leðinlega.
Nýbúinn að skipta um reimar hjá mér og það ískrar örlítið stundum hjá mér. Kippi mér sossem ekkert upp við það því það er svo lítið... en spurnig líka hvort að reimin sé bara svona strekkt og hvort það lagist ekki með tíma ?