Bremsuklossar!

Posted:
Fri 17. Mar 2006 21:33
by Jón Ragnar
Hvar finnið þið bremsuklossa sem sóta lítið en bremsa vel?

Sælir.

Posted:
Fri 17. Mar 2006 21:36
by Þórir
Ég keypti Febi eftir að hafa prufað Mintex. Þeir sótuðu lítið en ískruðu mikið, ég ráðlegg þér að kaupa ekki þannig.
Kveðja
Þórir

Posted:
Fri 17. Mar 2006 21:41
by Jón Ragnar
Er Mintex ekki ágætt samt?

Posted:
Fri 17. Mar 2006 23:23
by Þórir
Sko. Ég myndi kaupa Febi aftur, mér finnast þeir mjög góðir og ég get ekki kvartað undan miklu bremsuryki.
Mintex get ég ekki mælt með, þeir voru hræðilegir, gerðu mig algerlega snar, var ekki einu sinni hægt að rúnta niður Laugaveginn vegna óhljóða! Já, þetta var svona slæmt. Ég ráðlegg fólki bara eindregið fra þeim.
Kv.
Þórir I.

Posted:
Sat 18. Mar 2006 10:52
by Þórir
Jón Ragnar wrote:Febi fæst í bílanaust?
Nja, held ekki. Ég keypti mína í TB.
Getur kíkt á þetta:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=12102&highlight=

Posted:
Sat 18. Mar 2006 13:29
by Bjarkih
Ég er með Green Stuff klossa. Þeir ískruðu bara rétt þegar þeir voru nýjir (og undir slatta álagi) hafa bara verið þægir síðan.

Posted:
Sat 18. Mar 2006 14:03
by Einarsss
hvar fær mar greenstuff bremsupúða á íslandi ?

Posted:
Sat 18. Mar 2006 16:30
by Angelic0-
einarsss wrote:hvar fær mar greenstuff bremsupúða á íslandi ?
nkl, ég var með svona í Sunny GTi sem að ég átti...
geggjaðir klossar, gat bremsað endalaust án þess að þetta færi eitthvað að fade-a!