Page 1 of 1

M60 drepur á sér eftir nokkrar sekúndur

PostPosted: Wed 15. Mar 2006 19:56
by Bjarkih
Þannig er mál með vexti að bíllinn drepur á sér næstum á hverjum morgni þegar ég er að fara að heiman. Þetta gerist aldrei að deginum til, bara þegar hann er búinn að standa yfir nótt. Það er náttúrulega dálítið álag á rafkerfinu (kakóhitarinn og svoleiðis) en hann þoldi þetta vel í jafnvel mun meira frosti úti í Svíþjóð. En núna semsagt deyr hann eftir nokkura sekúndna gang og rýkur svo í gang um leið og maður snýr lyklinum aftur :? Getur einhver bent mér á mögulega orsök svo ég geti farið að athuga málið.

PostPosted: Wed 15. Mar 2006 20:25
by siggir
Hvernig lætur hann áður en drepst á honum? Kemur einhver truntugangur eða er bara eins og sé svissað af?

PostPosted: Fri 17. Mar 2006 19:08
by Bjarkih
Hann bara deyr. Að vísu hefur hann ekki gert þetta í gær og í dag þannig að ég vona bara að hann verði þægur áfram [-o<