bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
HJÁLP! Burrinn er bilaður d:( https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=14480 |
Page 1 of 1 |
Author: | Svessi [ Tue 14. Mar 2006 22:37 ] |
Post subject: | HJÁLP! Burrinn er bilaður d:( |
Jæja, BMW bilaður hjá mér enn einu sinni. Hvað er það með mig og BMW ...æ, jæja. 535iA ´89 bíllinn minn. Já, hann er sjálfskiptur. Hvað getur mögulega verið að? Ég var að keyra frá ljósunum við smáralindina og upp á Reykjanesbrautina í átt að Hfj. Allavega, ég er alveg að fara keyra yfir brúnna og er á í kringum 60 km hraða og er að auka ferðina uppí svona 80 km hraða og er ekkert að gefa í, bara mjög eðlilega daily driver inngjöf. Og í stað þess að skipta sér í kringum 3000 rpm þá fer hann alveg uppí 4000 rpm. Og svo finn ég strax hvað bíllinn verður allt í einu miklu þyngri. Ég þarf að gefa miklu meira inn heldur en eðlilegt er. En ég gat samt aukið ferðina aðeins og hann skipti sér eðlilega að mér fannst. Og ég fer strax útaf þarna hjá bílaapótekinu að hringtorginu, keyri Hæðarsmárann fyrir ofan malarsvæðið og ætlaði svo upp Smárahvammsveginn upp að hringtorginu á Arnarnesveginum. Og þá stoppaði hann. Vélin hélt áfram að vera í gangi en bíllinn var orðinn svo þungur að ég komst ekki upp brekkuna. En ég gat sett í Bakkgír og bakkað aftur til baka og fékk svo pallbíl til að skutla mér heim. Semsagt alla leiðina var hann hægt og rólega að verða þyngri, en skipti sér að mér fannst eðlilega. Ég stoppaði allavega þrisvar þarna á leiðinni því ég var að spá hvað ég ætti að gera. Það kom enginn smellur, ekkert skrölt, engin skilaboð í mælaboðið. Olían er eðlileg á kassanum. En ég er alveg skíthræddur um að kassinn hafi farið. Please segið mér að það sé bara eitthvað öryggi sem ég á að tjékka á eða eitthvað álíka fáránlegt. Ég bara nenni ekki að standa í þessu. Er ekki einhver ECU fyrir sjálfskiptingarnar á þessum bílum? Er eitthvað hægt að tjékka á þessu sjálfur eða þarf ég að fara með hann á verkstæði og borga álíka mikið og bíllinn er virði að láta gera við þetta? |
Author: | Geirinn [ Tue 14. Mar 2006 22:41 ] |
Post subject: | |
Eftir öðrum svona þráðum sem fjalla um það sama, þ.e. að bíllinn verður óvenjuþungur, þ.e. bregst illa við inngjöf þá gæti samkvæmt öðrum þráðum verið að skynjari sé farinn. Ég myndi (ef aðrir taka undir þetta) fara með hann í tölvu og láta lesa af honum. Vonandi er ekki meira en einn skynjari eða svo farinn. |
Author: | saemi [ Tue 14. Mar 2006 23:33 ] |
Post subject: | |
Ef vélin gengur eðlilega, hægt að setja hana upp á snúning í N eða P þá finnst mér þetta hljóma sem biluð skipting. Finnst mjög ólíklegt að þetta sé bara e-r skynjari eða svo. |
Author: | anger [ Wed 15. Mar 2006 01:07 ] |
Post subject: | |
750 gamli hljómar ekki sem slæm hugmynd nuna ha ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |