Page 1 of 1

Furðulegustu stærðir á dekkjum sem ég hef séð!

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 12:39
by Danni
Já þetta er eitthvað alveg nýtt fyrir mér. Var að kaupa mér notaðar felgur, Styling 5 á ónýtum dekkjum. Þær heita nákvæmlega: "Styling 5, Kreuzspeichen-Styling TRX" og stærðin á dekkjunum á þeim er:
240/45TR415
og svo stendur á þeim að stærðin eigi að vera:
195TR415

Þetta er eitthvað sem ég hef bara aldrei séð áður! Getur einhver frætt mig um hvað þessar stærðir þýða?


*BTW þetta geta ekki 240 dekk, þau eru ekki það breið.

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 12:43
by Svezel
þetta er mm drasl

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 12:46
by Angelic0-
hvar fást á þetta vetrardekk ?

Þessar felgur eru nú nokkuð merkilegar ;)

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 13:33
by Danni
Jæja það litla sem ég er búinn að komast af með endalausri google leit er að þetta eru spes TRX felgur og einu dekkin sem passa á þær eru 240/45 R415.

Tirerack selur bara 1 týpu af dekkjum og þau heita Michelin TRX GT og stærðin er 240/45ZR415 og stykkið kostar 225 dollara og það er Low availability.

Þetta eru víst stock felgur á E24 M6 eða allavega 6línu og þetta eru rare felgur sem virðast seljast dýrt úti... finn samt engin verð til að staðfesta það.

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 13:51
by Jón Ragnar
Stundum fær vaka svona dekk

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 14:01
by Svezel
það er bara vesen að vera með svona mm dót, þarft að borga alltof mikið fyrir dekk á þetta

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 14:10
by Þórir
Jahá. Þetta eru, eins og fram hefur komið, metric stærð sem átti að leysa af hólmi tommu dæmið en gerði það ekki. Þetta varð aldrei raunverulega vinsælt, lítið framboð af dekkkjum á þetta þegar best stóð og enn minna núna. Enda hafa manni verið boðnar svona felgur fyrir lítið sem ekkert.

Kv.
Þórir I.

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 14:20
by saemi
Danni wrote:Jæja það litla sem ég er búinn að komast af með endalausri google leit er að þetta eru spes TRX felgur og einu dekkin sem passa á þær eru 240/45 R415.

Tirerack selur bara 1 týpu af dekkjum og þau heita Michelin TRX GT og stærðin er 240/45ZR415 og stykkið kostar 225 dollara og það er Low availability.

Þetta eru víst stock felgur á E24 M6 eða allavega 6línu og þetta eru rare felgur sem virðast seljast dýrt úti... finn samt engin verð til að staðfesta það.


Þetta er ekki rétt. Þessar felgur fara ódýrt. Dekkin eru dýr og þetta er hálfgerður bastarður. En flottar :) Ég er með svona undir M5 E28 bílnum mínum. Bara smekklegt.

Hægt að fá þetta á 100-200 $/EUR settið á ebay

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 16:21
by Kristjan

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 17:00
by íbbi_
það er bara rugl vesen að fá dekk á þetta trx dót ég var með sona á gráa bimmanum mínum í smástund.. sem var sona sirka 16.5tomma e-h

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 17:18
by Alpina
Svezel wrote: ,,,,,,,,,,,,,,,,, þetta er drasl...........



Nei......nefnilega ekki..
Á sínum tíma ,,án vafa bestu og öruggustu dekk sem völ var á,, á felgunni er svona .........AF-FELGUNAR..... varnarkantur sem gerði það að verkum að ,,fræðilega,, var möguleiki á að afstýra slysi ef sprakk á miklum hraða,, stórsniðugt,,
Benda skal á að þessar felgur voru,,,,MARTRÖÐ,,, dekkjaverkstæðanna
þar sem mikla lagni og færni þurfti við dekkjaskiptingu

ps,,,,,,, dekkin kostuðu ::OFFJÁR og enn þann dag i dag eru þau á illréttanlegu verði

PostPosted: Sat 18. Feb 2006 20:23
by Danni
Kristjan wrote:http://felgenkatalog.auto-treff.com/showpic.php?nr=005a

Þessar?


Þessi linkur hjá þér skilaði bara einhverjum Error hjá mér, en það eru þessar:
http://felgenkatalog.auto-treff.com/53.htm

PostPosted: Sun 19. Feb 2006 13:38
by Kristjan
Ah ok... þessar eru alveg ágætar, synd með dekkin þó...