Page 1 of 1
skynjarar í E30 325

Posted:
Tue 07. Feb 2006 16:46
by Erica
Það er örugglega bæði vatnsskynjari og olíuskynjari farnir hjá mér og ég var að spá....
Finn ég þetta ekki einhvers staðar á partasölu í staðin fyrir að kaupa þetta nýtt?
Er þetta kannski eitthvað sem er engin nauðsyn að laga strax í dag?

Posted:
Tue 07. Feb 2006 16:48
by Geirinn
Hvernig lýsir þetta sér hjá þér ?

Posted:
Tue 07. Feb 2006 16:53
by Erica
kom check ljós hjá mér...TB sagði að þetta væri örugglega vatns skynjari þar sem var búið að fylla á vatnið.
Motoroil ljósið kviknaði í gær..bætti olíu á hann þannig að það er nóg olía á honum...fór upp í TB ef skyldi vanta oliu á drifið. Hann sagði ef það væri nóg olía á bílnum þá væri þetta án efa olíu skynjari
Á eftir að láta tengja hann við tölvu..það er planið um leið og ég redda pening

Posted:
Tue 07. Feb 2006 18:21
by Hannsi
þetta er líka alltaf on og off hjá mér er ekkert að spá í þessu veit að það er nóg af olíu á honum og kælivökvaneminn er ónýtur hjá mér

Posted:
Tue 07. Feb 2006 18:38
by Danni
Kemur alltaf í mínum E34 að það vanti kælivökva eða rúðupiss, samt er nóg af báðum hjá mér. Stressa mig ekkert yfir þessu, böggar mig líka ekkert þannig ég nenni ekki að spá í þessu.

Posted:
Tue 07. Feb 2006 23:03
by finnbogi
þegar olíu ljósið kemur þá vantar 1 líter af olíu á vélina
og þegar kælivökva ljósið kemur vantar held ég líka 1 - 2 lítra líka á kerfið
ég gæti giskað á ef það er alveg nó olía á bílnum að það gæti verið
að neminn sé kannski laus í og sé kannsi raki á honum eða hann sé bilaður
ég hugsa a þessir nemar sé ekki mjög dýrir í bogl eða tb
en annars passar þetta úr öllum M20 mótorunum í þinn ef einhver er að parsta svoleiðis
held minnir að það sé parta sala með mikið af bmw í garðabænum man
ekki alveg götunafnið

Posted:
Wed 08. Feb 2006 00:33
by Helgi M
Ég man reyndar ekki heldur götunafnið en hér er allvega númerið hjá partasölunni þarna í garðabæ 555 7577 að mig minnir
