Page 1 of 1

Varðandi dempara skipti í e34

PostPosted: Wed 25. Jan 2006 16:34
by Bjarkih
Ég er að fara að skipta um framdemparana hjá mér nú um helgina og var bara að spá í því hvort það væri eitthvað sem þyrfti/væri sniðugt að skipta um í leiðinni. Og hvort það væri hægt að nota alla bolta og svoleiðis aftur.

Re: Varðandi dempara skipti í e34

PostPosted: Wed 25. Jan 2006 16:43
by gstuning
Bjarkih wrote:Ég er að fara að skipta um framdemparana hjá mér nú um helgina og var bara að spá í því hvort það væri eitthvað sem þyrfti/væri sniðugt að skipta um í leiðinni. Og hvort það væri hægt að nota alla bolta og svoleiðis aftur.


það er ekkert sem í raun er nauðsyn nema þú hafir plan að viðhalda bílnum með fyribyggjandi viðhaldi , þá myndi ég skipta um spindilkúlur og helst stýrisenda

PostPosted: Wed 25. Jan 2006 16:44
by Logi
Þú færð líklegast rær með dempurunum (nr. 6 á myndinni).

Svo er bara spurn. hvernig dempara þú ætlar að fá þér? Ef þú færð þér Bilstein þá þarftu ekki að skipta um stopparann (nr. 9), hann er innbyggður í Bilstein Sport allavegana. Svo fylgir hlífin með (nr. 10).

Þú átt að geta notað alla bolta aftur.

Það gæti verið sniðugt að skipta um legurnar (nr. 1). Fer reyndar svolítið eftir því hvað bíllinn er ekinn...

Ég myndi einnig skoða að skipta um nr. 8 og 12.

Image

PostPosted: Wed 25. Jan 2006 16:50
by Bjarkih
Takk kærlega fyrir svörin. Þetta eru bara original demparar sem ég keypti í hann og hlífarnar fylgdu ekki með.