bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Rafvandræði
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=13611
Page 1 of 1

Author:  Einarsss [ Tue 24. Jan 2006 15:56 ]
Post subject:  Rafvandræði

Sælir, ég var að spá hvort einhver dýrðlingurinn gæti kíkt með mér á rafkerfið hjá mér ? :roll:

Bíllinn tæmir geyminn á sirka 36-48 tímum ef hann er óhreyfður.

Geymirinn var góður en er búinn að tæmast nokkrum sinnum og þess vegna byrjaður að slappast þannig að vandamálið liggur ekki þar.

Ég er búinn að vera ligga yfir teikningum af rafkerfinu og veit minna heldur en ég byrjaði að lesa þær :D

... en ég þarf endilega koma þessu í lag þar sem ég er orðinn þreyttur á að opna húddið og aftengja rafgeyminn ef ég er ekki að nota bílinn í lengri tíma.

Author:  Djofullinn [ Tue 24. Jan 2006 16:01 ]
Post subject: 

Það má nota bílskúrinn minn í þetta ef sami rafmagnssnillingur nennir að kíkja á þjófavörnina mína :)

Author:  Einarsss [ Tue 24. Jan 2006 16:13 ]
Post subject: 

btw ... ég er ekki að ætlast til að sá sem býður fram aðstoð sína geri við bílinn ... heldur miðli af sinni þekkingu en auðvitað má hjálpa til ;) og geti kannski lánað græjur í að greina vandamálið eins og t.d voltmæli

Author:  Geirinn [ Tue 24. Jan 2006 17:37 ]
Post subject: 

Tilvalið fyrir þá sem kunna að græða kippu(r) af bjór :lol:

Author:  Einsii [ Tue 24. Jan 2006 20:20 ]
Post subject: 

ertu með einhverjar aukagræjur einsog radarvara og þannig í bílnum.. eða varstu að tengja eitthvað í hann nylega ?

Author:  jens [ Tue 24. Jan 2006 21:31 ]
Post subject: 

Ég myndi byrja á einhverju fáránlega einföldu, slökknar örugglega á ljósunum í hanskahólfinu og skottinu rofarnir gætu hafa aflagast og rjúfa ekki.

Author:  Einarsss [ Wed 25. Jan 2006 08:35 ]
Post subject: 

hmm ... fór að skoða þetta betur í gærkvöldi ... það er ekkert sem logar á bílnum ... ss slitnir ljósrofa í hurðum eða álíka ...

En ... Gstuning skoðaði þetta aðeins þegar við skiptum um aftur dempara hjá mér um daginn og þegar mar plöggar öryggi númer 10 úr sem er fyrir bakkljósin og ljós í mælaborði og e-ð fleira ... byrjar að suða e-ð í "idle control valve" (held það heiti það á ensku ...) eða þarna unitinu sem er á gúmmí belgnum frá loftflæði skynjaranum að innsogsgreininni. og svo virka bakkljósin ekkert hjá mér ... þannig að þetta hlítur að tengjast e-ð saman hefði ég haldið :roll:


Einhver sem er vanur rafkerfi í E30 til í að skoða þetta með mér ?

Author:  Bjarki [ Wed 25. Jan 2006 09:00 ]
Post subject: 

Ef það er útleiðsla þá er að finna á hvaða grein byrja fyrst að mæla plús og mínus og svo öll öryggin þ.e. hvort það leiði á milli. Svo kannski leiðir á einu öryggi og þá les maður sér til um það hvað er á því öryggi og byrjar að skoða eða aftengja.

Author:  Gunnar735 [ Fri 27. Jan 2006 13:30 ]
Post subject:  h

á þetta löngum tíma er þetta eitthvað smálegt t.d útvarpstæki þau geta valdið svona ef þau eru etthvað biluð ..annars giska ég á ljósa relí sé brunnið og leiði eitthvað ennþá það gerðist hjá mér back in the days þegar mar var enni í þessu gamla

Author:  Hannsi [ Fri 27. Jan 2006 14:16 ]
Post subject: 

hmm þetta sama vandamál er með minn E30 en ég veit að það er útaf lélegri tengingu á útvarpinu í honum! ;)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/