Page 1 of 1

Raki í skotti - E30 með Mtech2 spoiler!

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 10:25
by Stanky
Komiði sælir,

Er með E30, mtech, 1990, 325i

Það er farinn að myndast svakalegur raki í skottið hjá mér, það kemur pollur í hólfið sem er vinstra meginn þar sem tjakkurinn er og það og upp í loftinu hjá skottinu er farinn að myndast svakalegur raki, og dropar farnir að myndast.

Ég var semsagt að láta sprauta spoilerinn minn og sprautarinn tók ekki af svona litlar svamp skinnur sem eru á spoilernum, og því held ég að þetta leki. Ég er nú búinn að fara í 4 búðir, en engar eiga þetta. Mér datt í hug að skera niður slöngu úr reiðhjóli og setja þarna á milli, en þá er annað vesen. Gúmmíið gefur ekki jafn mikið eftir og þessi svampur, og það eru bara einhverskonar plast toppar sem skrúfast úr skottlokinu í spoilerinn og ég held að það myndist ekki nægur þrýstingur og myndi því leka ennþá.

Svo finnst mér þessir plasttoppar ekkert herðast nógu mikið, liggur við að ég nái að skrúfa þá af með puttunum!

Þá fékk ég ennþá aðra hugmynd um að nota gúmmíslönguna, og setja bara rær og spennuskífur og herða mjög lítillega. Haldiði að það verði í lagi?

Með fyrirfram þökk,
haukur

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 10:47
by gstuning
Með hólfið þá myndi ég ráðleggja þér að gera gat á hólfið svo að raki og vatn komist í burtu,

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 11:10
by HPH
gstuning wrote:Með hólfið þá myndi ég ráðleggja þér að gera gat á hólfið svo að raki og vatn komist í burtu,

Já haukur gerðu það. ég er með gat í skottinu hjá mér og það kemur aldrei raki eða neitt 100% raka og ryð frítt. eini gallinn er sá að það kemur stundum drulla inn enda er gatið 2cm á stærð :oops: verður lagað flótt.

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 11:57
by Stanky
gstuning wrote:Með hólfið þá myndi ég ráðleggja þér að gera gat á hólfið svo að raki og vatn komist í burtu,


Á ég að gera gat í gólfið þar sem varadekkið er?

Er ekki nóg að hafa bara ca 2-3mm?

En á ég ekkert að vera þétta spoilerinn eða?

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 12:00
by Einarsss
gerðu gatið þar sem pollurinn er ;)

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 12:29
by gstuning
og hafðu það eins mjótt og hægt er,
vatn kemst í gegnum 2mm göt sko ;)

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 12:48
by Stanky
Okay, geri þá eitthvað svoleiðis.....

en enn og aftur, á ég ekkert að "endurþétta" spoilerkvikindið og setja þá rær og skinnur í stað þessara plasttappa?

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 13:26
by gstuning
Stanky wrote:Okay, geri þá eitthvað svoleiðis.....

en enn og aftur, á ég ekkert að "endurþétta" spoilerkvikindið og setja þá rær og skinnur í stað þessara plasttappa?


Ef það lekur með þeim þá er alveg þess virði að prufa eitthvað svona fix

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 13:43
by finnbogi
ég held að það sé drullu sniðugt að gera þetta gat

en ég ætlaði að spurja ertu búinn að láta ryðverja bílinn þinn haukur ?

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 14:23
by Stanky
Langt síðan, gerði það um leið! ;)

Keyrði hann í 1 dag og fór strax með hann í ryðvörn!

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 14:56
by jens
Þetta með poll undir tjakknum er vanda mál hjá fleirum en þér, þetta virðist alltaf koma hjá mér þó ég sé búinn að fara yfir þéttilistan og allt.

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 15:25
by Stanky
Skal láta þig vita hvernig þetta fer hjá mér eftir að ég geri gat á þetta og þurrka allt og set nýjar þéttingar á spoilerinn etc. ;)

Þá geturu allavega prufað það...:)

kv,
haukur

þakka fyrir svör, gstuning

PostPosted: Fri 20. Jan 2006 15:26
by gstuning
jens wrote:Þetta með poll undir tjakknum er vanda mál hjá fleirum en þér, þetta virðist alltaf koma hjá mér þó ég sé búinn að fara yfir þéttilistan og allt.


Hjá stefáni lagaðist það með nýjum þétti lista utan um gluggann

PostPosted: Sun 22. Jan 2006 01:36
by adler
Afturljósin eða loftnet er lang oftast sökudólgurinn það er mín reynsla,það þarf að leggjast í skottið með gott vasa ljós og láta einhvern buna vatni á bílinn á öll samskeiti og eftir smá tíma þá kemur í ljós hvar lekinn er að koma inn.
Að setja gat í gólfið eða hólfin er bara neyðar aðgerð því að það kemur áfram vatn í skottið á bílnum og það er eitthvað sem er ekki æskilegt í neinum bíl það getur orsakað alskonar vandamál eins og t.d vesin í ljósum sprungnar perur,og jarðsamband getur einangrast.

Trúið mér ég tala af reynslu.