Verkstæðistal um E30 325i
Ok pungar. Er með E30 325i. 05/1989.
Var aðeins á verkstæði með brumma áðan og núna spyr ég.
Nú er þetta minn fyrsti bíll og ég er ekkert allt of vel inni í þessu svo endilega ekki koma með skítkast heldur frekar uppbyggileg svör fyrir mig eða þá sem vilja læra.
Hversu mikið hitnar bíllinn hjá ykkur ? Minn er bara að hitna upp í fyrsta strik en hjá vini mínum upp í helming. Við vorum að skipta um vatnslás þannig að vatnskassinn væri mögulega að stríða mér ?
Það eru tvær pakkdósir sem maður ætti að skipta um þegar maður skiptir um tímareim, þ.e. sveifaráspakkdós og knastásapakkdós ? Ég var bara afgreiddur með eina í TB. Hums.
Það er alveg örugglega bara einn strekkjari fyrir tímareim sem maður skiptir um þegar maður skiptir um tímareim ? Fékk eitt stk. svoleiðis.
Eru ekki undirlyftur í þessu apparati ? Væri ekki sniðugt að skipta um það ef maður er að heyra ventlabank og ventlastilla í leiðinni ?
Hafa bílarnir ykkar eitthvað verið að leka olíu ? Hvað hefur það verið sem hefur verið að ?
Það er svona helst í bili, þið megið bæta við helstu slitflötum ef þið nennið. Hvað er MUST á þessum bílum ?
Með fyrirfram þökk, Geiri.