bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E36 '92 móðuvandamál https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=13292 |
Page 1 of 2 |
Author: | drolezi [ Thu 05. Jan 2006 23:29 ] |
Post subject: | E36 '92 móðuvandamál |
Núna hef ég verið að fá alveg svakaleg vandamál með móðu inni í bílnum og eyði ég oftast 5 mínútum, í hvert einasta sinn sem ég ræsi bílinn kaldann, í að losna við móðuna. Þetta var sérstaklega mikið vandamál í dag. Það myndaðist móða á framrúðunni meðan ég hljóp rétt inn (5 mínútur í mesta lagi). Kann einhver skil á þessu? Þetta er vægast sagt að gera mig geðveikann, sérstaklega þegar móðan frýs . . . ![]() |
Author: | ///Matti [ Thu 05. Jan 2006 23:32 ] |
Post subject: | |
Gæti verið raki inní bílnum,veit það ekki ![]() |
Author: | arnibjorn [ Thu 05. Jan 2006 23:50 ] |
Post subject: | |
nákvæmlega sama vandamál hér! Ég þoli þetta ekki.. og hvað meinaru með raka í bílnum? Teppið í gólfinu þá blautt eða? ![]() |
Author: | drolezi [ Thu 05. Jan 2006 23:56 ] |
Post subject: | |
Sko, ég hef haft hann innifyrir í þurrveðri í nokkra tíma undir industrial size hitablásara með allt opið. Tók mottur úr og allt, ekkert blautt. Þurrkaði svo allar rúður og þreif. Tveimur dögum seinna kom ég að bílnum móðudrifnum. Svo ÞARF ég að vera með klima unitið í gangi ef það er rigning úti eða með marga farþega, annars myndast bara móða. |
Author: | Bjössi [ Fri 06. Jan 2006 00:01 ] |
Post subject: | |
er móða ekki bara staðalbúnaður í bmw, það hefur alltaf komið svona móða eins og þið lýsið af og til í öllum þeim bmwum sem ég hef umgengist og notað (e34, e39, e46 og e60) ![]() |
Author: | drolezi [ Fri 06. Jan 2006 00:10 ] |
Post subject: | |
Fór og skoðaði gamla pósta =) fart wrote: Ef það kemur móða hjá þér þá er eitthvað að mistöðinni. Flicker wrote: Ég myndi prófa að slökkva á miðstöðinni svona 10 sek áður en þú drepur á honum... það virkar hjá mér allavega... einnig heyrði ég að þú getur sett dagblöð eða einhvern anskotann í bílinn
--- Ef ég slekk á miðstöðinni rétt áður en ég drep á bílnum er eins og það lokist alveg fyrir hana einhvernvegin og þá kemur ekki eins mikil móða, það er eins og öll móðan komi úr miðstöðinni hjá mér alla vegana... reyndar er aldrei móða nema á framrúðunni hjá mér ef það er einhver móða á annað borð Gæti þetta verið eitthvað AC tengt? Ég er nefnilega nýbúinn(fyrir 2-3 vikum) að skipta um brunnið öryggi sem var víst eitthvað tengt AC. Man ekki nákvæmlega hvar það var, en það var allavega 30A. |
Author: | Hrannar [ Fri 06. Jan 2006 01:09 ] |
Post subject: | Móða |
Var með þetta sama vandamál í E46 bíl. Það þurfti að skipta um frjókornasíuna. Þá lagaðist allt saman. Ég var einmitt að skipta um sömu síu í E34 bílnum mínum. Þar var miðstöðin hreinlega hætt að virka. Ég myndi ath. þetta. |
Author: | Angelic0- [ Fri 06. Jan 2006 08:00 ] |
Post subject: | |
Danni á við sama vandamál að stríða ![]() Og þetta virðist vera vesen hjá mér líka (rúðan hjá mér varð ógeðsleg þegar ég dró bílinn í vélarskipti í gær) |
Author: | grettir [ Fri 06. Jan 2006 10:19 ] |
Post subject: | |
Það safnast alltaf raki í gólfteppið og svampinn undir því. Ég set 2-3 fréttablöð undir hverja mottu þegar þetta er orðið vandamál. Blöðin draga í sig bleytuna og þurrka teppið. Eftir 2-3 daga þá er óhætt að henda blöðunum eða setja ný blöð ef það er ennþá raki í bílnum. |
Author: | karlbark [ Sat 07. Jan 2006 03:56 ] |
Post subject: | |
Já, þetta er einmitt að hrjá mig líka. Sem er auðvitað afar slæmt í annars svona góðum eðalbíl og gamli góði E-32-inn minn er. Mér finnst koma meiri móða en í nokkrum bíl sem ég hef átt vel lengi. Ókei, þetta með frjókornasíuna var góð ábending, ég hef einmitt ætlað að skipta um hana í nokkurn tíma en ekki látið verða af því. Nú verður það drifið af sem fyrst! Rakst einmitt á þessa spjallsíðu í fyrradag: http://www.bimmerboard.com/forums/posts/54597 Svo er annað sem mig RÁMAR í af sænskri spjallsíðu... (Ath. ég las þetta einhvern tíma fyrir 1-2 (?) árum þegar ég bjó úti í Svíaríki, svo ég er ekki viss um hversu rétt ég er að hafa þetta eftir). En það gekk sem sagt út á það að það gæti verið einhver bilun (eða leki) í miðstöðinni.... sem sagt einhvers staðar inni í mælaborðinu. Þetta var reyndar um SAAB 9000 CD sem ég átti úti, en ég las það líka einhvers staðar (nýlega) að í miðstöðinni á BMW væri eins konar mini-radiator sem hleypir inn heitu vatni af vélinni til þess að hita innanrýmið hraðar. Ef að það kæmi leki að þessu þá gæti myndast raki í teppum etc. Veit ekki hvort þarna var verið að tala um sama hlut og í SAABinum. Þar minnir mig að þetta hafi verið nefnt "heater-core"... en þó var þessi síða nú á sænsku, svo eitthvað er mig kannski að misminna þetta... Anyway... þið getið spáð í þetta... just my två kronor (2 cents) P.S. Já...og ef einhver hefur uppástungu um hvert ég gæti leitað með að láta laga þetta (og fleira smálegt) fyrir mig, þá endilega komið með þær. Ég geri þetta ekki sjálfur og þar sem ég hef ekki búið hérna heima undanfarin ár, þá er ég ekki svo vel inni í bílamálunum hérna... |
Author: | ta [ Sat 07. Jan 2006 13:44 ] |
Post subject: | |
það má spyrja konuna ef það er erfitt að komast að, eins og í þessu tilfelli ![]() ´Yes, that's actually his wife in the photo, changing the microfilter. What a woman!´ |
Author: | srr [ Sat 07. Jan 2006 14:01 ] |
Post subject: | |
Svona eiga kvenmenn að vera. ![]() |
Author: | adler [ Sat 07. Jan 2006 18:31 ] |
Post subject: | |
Í þau skipti sem ég hef lent í móðu vandamálum þá hefur oftast verið lokað fyrir loft rásina sem tekur loftið utanfrá, stundum hefur lokan staðið föst eða að menn eru t.d. að þrífa mælaborðið og hafa hreift takkann sem lokar fyrir loftið en kannski hefur hann ekki verið hreifður svo árum skiptir en svo festist lokan og menn bara fatta það ekki fyrr en að allt fer í móðu. |
Author: | Knud [ Sat 07. Jan 2006 18:42 ] |
Post subject: | |
Var ekki líka efni frá autoglym sem eyðir móðu? eða er ég bara að rugla? ![]() |
Author: | bebecar [ Sat 07. Jan 2006 19:51 ] |
Post subject: | |
Ég lennti í þessu á mínum M5 - skipti um frjókornasíuna og BINGÓ! Engin móða og 4 vindstig inn í bílnum á hæstu stillingu ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |