Page 1 of 1

Mengunarmæling há!

PostPosted: Tue 13. Dec 2005 22:41
by Hallipals
Sælir! Ég var að velta fyrir mér, ég fór með bílinn minn í ástandskoðun og það kom allt gott úr því nema að CO-innihald og HO-innihald í útblæstri voru utan viðmiðunarmarka framleiðanda s.s of hátt! CO-innihaldið mældist 7,22% (er venjulegast í kringum 1%) og HC-innihaldið mældist 700ppm. Þessar tölur eru víst alltof háar. Veit einhver hvað gæti stafað að þessu? Ég lét TB tengja bílinn við tölvu og það kom ekkert athugavert úr því. En ég veit að það er búið að taka hvafakútinn undan bílnum og það ætti augljóslega að auka mengunina eitthvað en ekki svona mikið er það? Getur verið að súrefnisskynjarinn sé farinn eða ætti það að koma í ljós þegar ég lét TB tölvutengja hann?

kv.Halli

PostPosted: Tue 13. Dec 2005 23:40
by Gísli Camaro
þetta var svona í bílnum mínum eða 5, e-h og þeir niðri í tb stilltu hann baraóg náðu honum niðri 1. tók bara 10-15 min

PostPosted: Wed 14. Dec 2005 13:21
by Angelic0-
ÍSÓPRÓPANÓL áður en þú ferð í skoðun, þá ertu safe ;)

PostPosted: Wed 14. Dec 2005 14:13
by kiddim5/mpower
Ef að þetta er 325 árg 94 þá er þetta m50 mótor, ´700ppm er óbrunnið bensín sem er að koma út um pústið hjá þér, það er e
kki eðlilegt með vél sem er með súrefnisskinjara.þetta á að vera í kringum 100 í hægagangi, þannig að meðaða við þetta þá er bíllinn líklegast að eyða dáldið hjá þér, það borgar sig að athuga loftflæðimælinn og súrefnisskynjarann til að byrja með, en í sambandi við co þá skaltu byrja á því að kíkja á kertin í bílnum það getur sagt mikið til um hvernig bruninn er í sambandi við meingun, en hvað er bíllinn annars keyrður hjá þér, þetta er náttlega skiljanlegt ef hann er keyrður 250þúskm eða meira.

PostPosted: Wed 14. Dec 2005 16:08
by Hallipals
Bíllinn er ekki keyrður nema 175 þús... og já bíllinn er að eyða um 15 lítrum á hundraði sem er of mikið meðal við svona bíla þegar maður keyrir eðlilega :S ég þarf að láta kíkja á þetta þá... getur verið að þetta sé eitthvað alvarlegt eða?

kv.Halli