Page 1 of 3

Læsinga/hurðavesen á e-34.

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 03:42
by zneb
Ég er orðinn frekar pirraður á læsingunum í bílnum hjá mér. Til að byrja með þá hefur læsingin á skottið aldrei virkað, skottið læsist semsagt ekki. Sílsinn bílstjórameginn áhvað síðan að eyðileggjast þannig að ég verð að opna/læsa farþegamegin en ég gat svosem alveg lifað með því svona í bili. Þarf líka alltaf að læsa tvisvar, bíllinn opnast semsagt sjálfkrafa þegar það er búið að læsa 1sinni.

Lenti síðan í því að í dag þá neitaði bíllinn bara að opnast, eins og hann væri rafmagnslaus eða e-ð? Reyndi öll trix en ekkert gekk. Fór þá í vinnuna á vinnubílnum og fékk síðan félaga minn til að koma eftir það til að gefa bílnum straum. Ákvað samt að reyna einu sinn enn að opna á hefðbundinn hátt og þá opnast bíllinn eins og ekkert sé, eða svona allavega eins og áður og rauk í gang :?

Fer niður í bæ og læsi bílnum, ekki sniðugt. Þegar ég ætla að opna aftur þá gerist aftur ekki neitt og síminn minn inní bíl auðvitað. Endar með því að vinur vinar míns sem ég hitti þar smeigir sér í gegnum skíðapokagatið en það er samt ekki hægt að opna innanfrá! Bíllinn rýkur samt í gang og félaginn þarf því að fara útum gluggann. Ég geri mig tilbúinn til að fara inní bílinn gegnum gluggann og keyra heim en þá opnast hurðin en vill ekki lokast aftur :burn: Bara hægt að "hálfloka" henni. Hefur reyndar stundum verið vesen að loka í mesta frostinu en það hefur þó lagast þegar bíllinn hitnar.

Því er bíllinn bara uppi á smíðaverkstæði hjá pabba og bíður eftir athygli núna.

Hvað er eiginlega að, þetta er að gera mig geðveikan og ég ætla ekki að hreyfa bílinn fyrr en þetta verður fixað. Nenni ekki aftur að standa eins og auli fyrir utan bílinn niðrí bæ að reyna að komast inn :lol: . Eflaust margir sem veltu því fyrir sér hvort ég væri að reyna að brjótast inní bílinn eða e-ð :roll:

Plís e-r ráð??

Re: Læsinga/hurðavesen á e-34.

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 11:40
by Aron Andrew
zneb wrote: Eflaust margir sem veltu því fyrir sér hvort ég væri að reyna að brjótast inní bílinn eða e-ð :roll:

Plís e-r ráð??


Varstu að vesenast eitthvað þarna rétt hjá Nonnabita í gærkvöldi?
Ég sá einmitt einhvern í svipuðu veseni þar. Ég trúði bara ekki að fólk færi að brjótast inn í bíl þar.

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 12:27
by pallorri
Ah ég sá þetta líka, hvítur 525i, veeeel snyrtilegur btw :)

Ég er einmitt líka búinn að lenda í svona lásaveseni. Bíllinn tekur upp á því
allt í einu að læsa sér uppúr þurru og þetta byrjaði á sama tíma og frostið
kom fyrir nokkrum vikum. Núna á meðan það er hiti þá lagast þetta hjá mér
og bíllinn hættir að vera svona leiðinlegur. Er málið að skipta út læsingunni
eða?

Feel your pain!

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 12:35
by IvanAnders
Og þið semsagt stóðuð báðir þarna og horfðuð á kauða í veseni og buðuð ekki fram hjálp?
[-(




:angel:

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 12:37
by pallorri
Ég fattaði ekkert hvað var í gangi og var líka með fullan bíl af kvennfólki ;)

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 12:43
by IvanAnders
trapt wrote:Ég fattaði ekkert hvað var í gangi og var líka með fullan bíl af kvennfólki ;)


jæja, nú er engin spurning um að þú ert að ljúga :wink:

sorry OT :oops:

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 16:08
by IceDev
Hann var að skutla múttu og vinkonum á djammið

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 16:48
by pallorri
IceDev wrote:Hann var að skutla múttu og vinkonum á djammið

as you said...

mamma þín var svoldið í því sko :?

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 16:59
by Aron Andrew
:lol2:

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 17:36
by IceDev
Og að hugsa sér, ég var bara að giska :P

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 20:06
by zneb
Reyndar er þetta svartur 535 en jú ég var þarna fyrir utan nonnabita. Er þetta semsagt orðið e-ð tímabil núna hjá e34? Kannski mánaðarlegt :roll:

En allavega takk fyrir ekki-aðstoðina þarna :evil: :wink: . Endaði með því að ég fékk að hringja hjá dverg sem var á djamminu þarna í vin minn til að aðstoða mig, hehe. Hann var reyndar soldið hræddur um að ég myndi hlaupa í burtu með símann sinn :lol:

En er engum sem dettur e-ð sniðugt í hug til að tékka á? Held að maður prófi bara að taka hurðarspjöldin úr og hreinsa vel og smyrja, fá síðan kanski e-n til að mæla rafmagnssystemið upp og skipta um þennan sílsa. Get ég fengið nýjan sílsa fyrir lykilinn minn eða verð ég að kaupa nýtt sett?

PostPosted: Sat 10. Dec 2005 20:38
by Aron Andrew
zneb wrote:En allavega takk fyrir ekki-aðstoðina þarna :evil: :wink: .


:oops: Sorry

PostPosted: Sun 11. Dec 2005 13:51
by Jón Ragnar
Áttu myndir af þessum 535i?

Me So Forvitinn :lol:

PostPosted: Sun 11. Dec 2005 15:35
by Bjarki
Ef bíllinn opnast ekki og er rafmagnslaus þá virkar að snúa lyklinum og taka svo húninn upp og þá er hægt að snúa lengra og þá opnast.
Oftast eru svona samlæsingarvandamál mjög einföld, getur verið að e-r teinn sé laus og þess vegna virki þetta ekki bílstjóramegin, blasir oftast við manni þegar maður opnar þetta.
Ef hurðir lokast ekki í frosti þá er bara að smyrja vel. Það er hægt að panta nýja skrá en það er sennilega dýrt, ef þessi er orðin slitin þá er hægt að finna aðra minna slitna og búa til eina góða út tveimur.
Með að bíllinn læsist aftur þegar þú ert að opna þá er að prófa að skipta um control module, fá úr nýrri bíl.
Skottið er örugglega e-ð mjög basic.
Annars eru þessar læsingar/samlæsingar í þessum bílum ótrúlega góðar m.v. hvað þetta er í raun flókið.

PostPosted: Sun 11. Dec 2005 16:28
by Jónki 320i ´84
Með skottið, er læsingarteinninn sem fer frá cylendrinum niðrí samlæsingarmótorinn ekki bara orðinn laus, lendi stundum í þessu á e30 :wink: