Page 1 of 1

furðulegt rafmagnsvandamál

PostPosted: Wed 16. Nov 2005 08:43
by bimmmi
Er þetta rafgeimirinn, alternatorinn eða lekur rafmaknið hreinlega út ? :wink:

málið lýsir sér einhvernveginn svona;

Hann hefur alltaf verið með smá vesen, rafmagnslaus ef maður gleymdi að slökkva ljósin í smá stund. Svo núna fyrir stuttu var hann byrjaður að verða rafmagnslaus nánast alltaf (sérstaklega þegar það var frost) svo ég byrjaði á því að kaupa mér notaðann rafgeimi. Hlóð hann (inni!! ekki með bílnum) og setti hann í.

Hann virkaði fínnt, bíllinn alltaf í gang og allir happy. En nei þá tók bíllinn upp á því að slökkva á sér svona alltíeinu og var algjörlega rafmagnslaus á ferð!! en fór strax í gang aftur því hann var á ferð (þetta gerðist bara þegar bíllinn fór yfir hraðahindrun eða harkalega beygju) jæjja þá hlítur þetta að vera alternatorinn og ég prufaði að taka rafgeiminn úr sambandi og bíllinn gekk??!

jæjja ég fékk start og fór heim, en í morgunn startaði bíllinn eins og ekkert sé!!??

er ég svona mikil ljóska eða er þetta eitthvað skrítið?? :shock:

PostPosted: Wed 16. Nov 2005 09:18
by srr
Laus jarðtenging úr vélinni í boddý ?
Lélegir rafgeymaskór ?

PostPosted: Wed 16. Nov 2005 09:29
by Logi
Já þetta hljómar eins og sambandsleysi...

PostPosted: Wed 16. Nov 2005 09:52
by bimmmi
srr wrote:Laus jarðtenging úr vélinni í boddý ?
Lélegir rafgeymaskór ?


hjómar mjög líklegt!! veit ekki allveg afhverju ég fattaði það ekki fyrr :lol:

PostPosted: Wed 16. Nov 2005 12:27
by IvanAnders
Maður á ekki að kaupa notaða rafgeyma, og það er ekkert skrýtið að bíllinn hafi gengið þó að geymirinn væri ekki í sambandi, kveikjan fær ekki straum frá geymi :wink: en sambandsleysi á geymi er ekki ólíklegt :)