Page 1 of 1
Vatnskassa pælingar

Posted:
Tue 04. Oct 2005 21:11
by gunnar
Jæja, núna er ég að skipta um vatnskassa hjá mér... Ég fékk kassa úr BMW 318 ssk bíl. Kassinn virðist vera voðalega svipaður. Ég færi bara sjálfskiptikæli-elimentið yfir á 318 kassann og hann á að passa. En það er smá sem ég er að pæla í, það eru allir stútar alveg eins á kössunum, en það eru tveir á hliðinni á 318 kassanum sem ég veit ekki alveg hvað gera (ekki svona hosu gaurar..) meira svona eins stútarnir sem eru á sjálfskiptigræjunni.
Veit einhver hvað þetta er og má ég loka fyrir þetta bara eða ?

Posted:
Wed 05. Oct 2005 08:15
by gunnar
ég veit að mynd segir meira en þúsund orð, en það hlýtur einhver að vita þetta ?

Posted:
Wed 05. Oct 2005 22:25
by Fjarki
Kaupa bara nýjann kassa,

Hef unnið svoldið í vatnskössum en vantar mynd til að sjá þetta, hlýtur að geta reddað því. En allavega, þú etr á 320 og ætlar að nota kassa úr 318, bíllinn þinn er sjálfskiptur og þú ætlar að taka botninn af 320 kassanum og setja hann á 318 kassann og nota hann. Er þetta ekki svona.
Er kælirinn fyrir skiptinguna fyrir utan kassa eða í botninum.
En allavega, ertu búinn að svissa botnum, ef ekki hvernig ætlarðu að gera það??
Prófaðu bara að dæla vatni í þessi rör sem eru á hliðunum, þá sérðu hvort það kemur út um hitt rörið eða hvað, ef svo er, þá er þetta bara annar kælir fyrir eitthvað annað. Getur verið að þetta séu einhverskonar yfirfallsstútar??

Posted:
Wed 05. Oct 2005 22:44
by gunnar
Wooooooooooooowww... Skom, ég hringdi í Tækniþjónustu bifreiða og þeir sögðu að þetta væri ekkert mál. Að þetta ætti alveg að passa á milli.
Núna ertu að tala um einhvern botn,,, sem ég botna bara ekkert í... hahahha
Hefuru gert svona botnskipti ? (damn i'm on fire)

Posted:
Wed 05. Oct 2005 22:46
by IceDev
Það er greinilegt að Gunnar er allur í botnum ( sjá avatar )

Posted:
Wed 05. Oct 2005 22:48
by gunnar
Hehe
Samt greinilega ekki klár að fikta í þeim


Posted:
Wed 05. Oct 2005 23:25
by Fjarki
Sjálfskiptikælirinn, er hann í botninum á vatnskassanum, það er toppur og botn, botnasett, svartir plastbotnar með ýmsu skrauti á, stútum festingum og eiithvað fleira. Sjálfskiptikælirinn er í einum slíkum ekki satt, og þú ert að tala um að færa kælirinn yfir á hinn kassann ekki satt, eða ætlarð bara að skipta um kassa,. Ætlarðu ekki að taka annað botnstykkið og færa yfir á hinn. Eða er kælirinn stakur fyrir utan kassann.

Posted:
Wed 05. Oct 2005 23:30
by gunnar
Kælirinn er stakur fyrir utan kassann.. Skrúfaður á.. get ég ekki bara fært hann yfir á 318 kassann og lokað fyrir þessa stúta ?

Posted:
Wed 05. Oct 2005 23:38
by Fjarki
Ef það eru festingar og allt fyrir kælinn þá er þetta ekkert mál, eru þessir stútar úr plasti eða kopar, prófaðu að láta renna vatn í hann, ef það fer í kassann þá lokarðu bara fyrir og líka ef þetta er einhevr kælir. Ef þeir eru alveg eins þá skiptir þetta engu máli, snúa þessir stútar upp eða niður þegar kassinn er í bílnum. Eru þetta ekki bara eyru fyrir festingar. Eru allar festinar eins á kössunum, þá er bara að swappa í.

Posted:
Wed 05. Oct 2005 23:53
by Djofullinn
Eru þetta ekki bara stútarnir fyrir stýrisvökvann?
Eða ertu ekki að tala um stúta sem snúa að mótornum og eru lengst til vinstri á kassanum (þegar þú horfir á hann frá mótornum), annar ofarlega og hinn neðarlega?

Posted:
Thu 06. Oct 2005 09:10
by gunnar
Kem með myndir í kvöld...


Posted:
Thu 06. Oct 2005 11:24
by zazou
gunnar wrote:Kem með myndir í kvöld...

Myndir af (avatar-) botninum?


Posted:
Thu 06. Oct 2005 14:30
by gunnar
Jámm, lofa að mynda báða botnana...
