Page 1 of 2
Síginn að aftan.

Posted:
Tue 30. Aug 2005 10:02
by Runkiboy
Mér finnst græjan hjá mér vera svo síginn að aftan. Eru þetta dempararnir að gefa sig ?


Posted:
Tue 30. Aug 2005 10:07
by oskard
gormarnir

Posted:
Tue 30. Aug 2005 14:38
by Runkiboy
Þannig að ef ég kaupi gorma þá ætti hann að lyfta sér töluvert upp. Það er ekki séns á því að dempararnir séu að verða slappir.

Posted:
Tue 30. Aug 2005 14:46
by oskard
dempararnir þínir geta líka allveg verið lélegir en þeir breyta
ekki hæðinni á bílinum, gormarnir gera það


Posted:
Tue 30. Aug 2005 14:47
by hlynurst
Runkiboy wrote:Þannig að ef ég kaupi gorma þá ætti hann að lyfta sér töluvert upp. Það er ekki séns á því að dempararnir séu að verða slappir.
Dempararnir geta auðvitað verið slappir en þeir eiga ekki þátt í því að láta bílinn síga að aftan.


Posted:
Tue 30. Aug 2005 15:02
by Runkiboy
ok þá fer ég og redda mér nýjum gormum.

Posted:
Tue 30. Aug 2005 15:16
by Runkiboy
Er einhver hérna á spjallinu sem tekur að sér að gera við svona lagað. Ég að gera við bíla er eins og belja á svelli. ekki sniðugt.


Posted:
Tue 30. Aug 2005 15:19
by gstuning
Runkiboy wrote:Er einhver hérna á spjallinu sem tekur að sér að gera við svona lagað. Ég að gera við bíla er eins og belja á svelli. ekki sniðugt.

Ertu að tala um að aftann??
Ef gormarnir eru ekki utan um demparanna þá skal ég gera það fyrir 3000kall fyrir utan heima hjá þér

Posted:
Tue 30. Aug 2005 15:21
by Höfuðpaurinn
Runkiboy wrote:Er einhver hérna á spjallinu sem tekur að sér að gera við svona lagað. Ég að gera við bíla er eins og belja á svelli. ekki sniðugt.

ég skal íhuga að gera þetta ef þú kaupir gorma handa mér líka, minn ber sig alveg eins og þinn!


Posted:
Tue 30. Aug 2005 15:40
by gstuning
Runkiboy wrote:Er einhver hérna á spjallinu sem tekur að sér að gera við svona lagað. Ég að gera við bíla er eins og belja á svelli. ekki sniðugt.

svo geturðu fengið gorma hjá mér líka


Posted:
Tue 30. Aug 2005 15:52
by Höfuðpaurinn
gstuning wrote:...Ef gormarnir eru ekki utan um demparanna...
mig minnir að þetta sé utan um gorminn, er það eitthvað brjálað vesen?
gstuning wrote:svo geturðu fengið gorma hjá mér líka

geturu sent mér prísinn í pm?

Posted:
Tue 30. Aug 2005 16:48
by íbbi_
afturgormarnir í e34 og e32 eiga það til að brotna, þá setjast þeir sona á rassin,
annars er ekkert óalgengt að þeir séu sona, grái 735-inn minn sat alltaf sona á 17" en var réttur á 15"

Posted:
Tue 30. Aug 2005 16:53
by gstuning
íbbi_ wrote:afturgormarnir í e34 og e32 eiga það til að brotna, þá setjast þeir sona á rassin,
annars er ekkert óalgengt að þeir séu sona, grái 735-inn minn sat alltaf sona á 17" en var réttur á 15"
Ástæðan er sú að "17 hafa meiri tog eða átak á gormanna heldur en "15

Posted:
Tue 30. Aug 2005 16:56
by Lindemann
minn er líka svona siginn að aftan(virðist siginn allavega) en það eru nýjir gormar að aftan í honum (gömlu brotnuðu eins og íbbi var að tala um).

Posted:
Tue 30. Aug 2005 17:03
by Höfuðpaurinn
Lindemann wrote:minn er líka svona siginn að aftan(virðist siginn allavega) en það eru nýjir gormar að aftan í honum (gömlu brotnuðu eins og íbbi var að tala um).
þá hef ég engar áhyggur, ég var einmitt búinn að kíkja á gormana hjá mér í vor og þá sá ég ekkert að þeim