Page 1 of 1
Koma listum í E30

Posted:
Wed 17. Aug 2005 21:35
by jens
Hvernig í helv..... komið þið Shadow line listunum í kringum afturhliðar rúðuna á aftur í E30. Mig vantar ráð.

Posted:
Wed 17. Aug 2005 22:20
by jens
Er þetta hækt yfir höfuð, er að verða vitlaus á þessu.
](./images/smilies/eusa_wall.gif)

Posted:
Wed 17. Aug 2005 23:29
by oskard
ég veit ekki nákvæmlega hvaða lista þú ert að tala um en ég hef gert
svona nokkrum sinnum og hefur mér þótt best að setja alla listana á
rúðuna áður en hún er sett á bílinn

Posted:
Thu 18. Aug 2005 00:04
by Friðrik
sæll
var að gera þetta í vikunni með félaga mínum. eins og óskar sagði þá verður þú að taka rúðuna úr setja rúðuna og listann saman fyrst (fyrst listann á gúmmíið og svo troða rúðunni í gúmmíið) og nota nógu mikið af smurningu (sápu, olíu...). svo er það að koma rúðunni aftur inn í karminn, það er vesen, sko aðferðin sem við notuðum var að þræða band á gúmmíið sem krækist utan um karminn og láta endana stand út að nepan. næst verðuru að fá einhvern til þess að leggja rúðuna á gluggakamrinn neðst. síðan ert þú inní bílnum og togar bandið útfyrir kamrinn þannig að gúmmíið komi með, þetta er smá tækni og getur verið að þú þurfir að gera þetta nokkrum sinnum en leið og þetta tekst þá er etta ekkert mál. vona að þú skiljir um hvað ég er að tala...

Posted:
Thu 18. Aug 2005 00:05
by oskard
í staðin fyrir bandið sem friðrik talar um hef ég bara notað nett skrúfjárn með góðum árangri


Posted:
Thu 18. Aug 2005 10:25
by jens
Úff það var þetta sem ég óttaðist mest, en takk kærlega fyrir góð svör.