Er það algengt í BMW að spólurnar í sætisbeltunum læsi sér? Ég er nú búinn að lenda í því tvisvar, fyrra skiptið kom það reyndar fyrir hjá Hannesi (316i) á Touringnum en svo núna áðan hjá mér. Virðist vera sem að einhver lás fer í gang við högg sem gæti verið árekstur. En eina höggið sem hefur kom hjá mér milli þess tíma sem farþegi notaði beltið i lagi og þegar farþegi reyndi að nota beltið eru högg frá bassakeilunni, og belti sem er fjær henni læstist.
Þetta er þannig að það er bara ekki hægt að toga beltið út. Fer lengra inn en ekkert út. Núna er annað beltið bara að kremja leðursætið mitt
En hvernig laga ég þetta? Er hægt að laga spóluna eða þarf bara að fá allt stykkið nýtt?