Page 1 of 1

Intake hose spurning?

PostPosted: Wed 25. May 2005 19:39
by Logi
Hvernig lýsir það sér þegar það kemur rifa á þetta:
Image
Hose between the air flow meter and throttle body.

Anyone?

PostPosted: Wed 25. May 2005 19:57
by oskard
vacuum leki, bíllinn gengur lélegann lausagang, chokear þegar
það er ýtt stutt á bensíngjöfina og bíllinn keyrir væntanlega of
ríkur... getur líka drepið á sér þegar hann er orðinn heitur

PostPosted: Wed 25. May 2005 19:57
by oskard
ég á svona til ef þig langar að replacea hana með þinni og sjá hvort
það lagi það sem er að hrjá þig ;)

PostPosted: Wed 25. May 2005 23:08
by Logi
Það sem er að hrjá mig er að hann hikstar undir átaki á lágsnúningi (milli 1.000 og 2.000 rpm). Svo er hann svolítið hikandi á WOT í fyrsta og öðrum gír! Finn ekki fyrir því í þriðja, hvernig svo sem stendur á því :roll:

Ég hef tekið eftir því að hann er svolitla stund að jafna sig í hægaganginum, fer upp og niður (550-700 rpm) nokkrum sinnum og fer svo að ganga jafnt.
Fór með bílinn í skoðun í gær og hann mældist með 0,0 í mengun :? , það bendir ekki til þess að blandan sé sterk...

En ég fann rifu á "sogbelgnum" eins og þetta er kallað á www.bifreid.is og hjá þeim kostar þetta um 2.000 kr.

Þannig að það verður byrjað á því að skipta þessu út og sjá hvort hann lagist ekki við það :D

PostPosted: Wed 25. May 2005 23:23
by arnib
Ég gæti vel trúað því að gat á þessu valdi því að hann
sé lengi að jafna ganginn í lausagangi.

Ég efast reyndar um að þetta sé vacuum leki, því að þetta er fyrir framan
throttle body, en þetta er auðvitað ómælt loft sem gæti bæði valdið
veikri blöndu og gert lausagangsventlinum erfiðara fyrir!

2000 kall er ALLS ekki mikið fyrir svona stykki, ég hélt að það væri nær 6-7 þúsund krónum!

PostPosted: Wed 25. May 2005 23:48
by Lindemann
gæti þá líka verið þetta hjá mér, bíllinn á það til að koka(jafnvel drepa alveg á sér) þegar hann er í hægagangi og maður gefur í? gerist samt aldrei þegar maður er á snúning og gefur í.

PostPosted: Thu 26. May 2005 10:58
by Logi
Lindemann wrote:gæti þá líka verið þetta hjá mér, bíllinn á það til að koka(jafnvel drepa alveg á sér) þegar hann er í hægagangi og maður gefur í? gerist samt aldrei þegar maður er á snúning og gefur í.

Um að gera að ath þetta, ef þetta er farið að "morkna" þá ættirðu að sjá rifu eða rifur á þessu...

PostPosted: Fri 27. May 2005 09:01
by Logi
Jæja, ég skipti um þetta í gær og bíllinn er allt annar :D