Page 1 of 1
Tollar og flutningur á álfelgur eða dekk!

Posted:
Wed 19. Mar 2003 14:48
by bebecar
Það var verið að ræða hvað kostar að flytja inn felgur....
Ég veit um felgur sem ég get fengið á 34 þús úti, en veit einhver hvað maður borgar í gjöld og flutninga af þessu - þetta er notað auðvitað...

Posted:
Wed 19. Mar 2003 15:01
by Gunni
Ég ráðlegg þér að senda fyrirspurn varðandi þetta á
tollstjori@tollur.is þeir svara um hæl. Spurðu líka hvort það breyti einhverju varðandi gjöldin hvort þetta sé framleitt í evrópu eða ekki. Ég póstaði upplýsingum hérna um daginn sem ég fékk frá tollstjóra varðandi innflutning á dekkjum. pósta því hér þegar ég finn það.
kveðja, Gunni

Posted:
Wed 19. Mar 2003 15:03
by Gunni
það er s.s. svona:
Já í dag eru gjöld við innflutning á hjólbörðum þannig að A tollur er =
10% (USA, Asía og fl lönd) en E tollur er = 0% (EES samningurinn og
upprunasönnun) svo til öll lönd í Evrópu.
Síðan er vörugjald sem er 20 kr. kg. óháð löndum, svo er nýtt gjald
svokallað úrvinnslugjald (spilliefnagjald) sem er 36,02 kr. kg. og svo í
lokin er 24,5% virðisaukaskattur.

Posted:
Wed 19. Mar 2003 15:13
by oskard
Á felgum er þetta svona ef ég man rétt:
Tollur = 7,5%
Vörugjald = 15%
Vaskur = 24,5%
en ef felgurnar eru framleiddar í evrópu þá sleppuru við tollinn
og borgar bara vörugjald og vask ....

Posted:
Wed 19. Mar 2003 15:17
by bebecar
Takk... þetta er frábært!
þá er bara að tékka á flutningnum!
Felgurnar eru varla meira en 20 kíló hámark...þannig að það er þá ekki nema mesta lagi 2 þús sem leggst ofan á.
Svo flutningur... kannski 10 þús? Og þá væri þetta á 57 hingað komið....
ekki svo slæmt! I want! I want! I need money


Posted:
Wed 19. Mar 2003 16:07
by Gunni
bebecar wrote:Felgurnar eru varla meira en 20 kíló hámark...þannig að það er þá ekki nema mesta lagi 2 þús sem leggst ofan á.
það voru dekkin sem voru með þyndartengdu-vörugjöldunum


Posted:
Wed 19. Mar 2003 16:41
by bebecar
Alltaf batnar það!

Posted:
Wed 19. Mar 2003 17:45
by gstuning
Felga "15 er um 7-14kg stykkið,
Það sem að mér finnst asnalegast er að maður þarf að borga vörugjald og vsk af flutningnum frá útlöndum, það hækkar verðið alltaf þvílíkt, stundum um 20-40% bara af því að hluturinn úti er svo ódýr en þungur,

Posted:
Wed 19. Mar 2003 18:34
by Jss
gstuning wrote:
Það sem að mér finnst asnalegast er að maður þarf að borga vörugjald og vsk af flutningnum frá útlöndum, það hækkar verðið alltaf þvílíkt, stundum um 20-40% bara af því að hluturinn úti er svo ódýr en þungur,
Meira en sammála þér, þetta er svona hér á Íslandi og einhverjum örfáum bananalýðveldum. Með þessu skipulagi er maður að borga vaskinn tvisvar af flutningsgjöldum sem og öðrum gjöldum sem falla á innflutta hlutinn sem þýðir að ríkið fær meira en tvöfalt meira í kassann

.