bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 18. Jun 2025 13:18

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: E39 tölva.
PostPosted: Sun 01. May 2005 16:31 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Sælir.

Nú er ég að bíða eftir E-39 523 bíl sem er í skipi á leiðinni heim til mín. Nú er ég búinn að vera að leita mér að upplýsingum, bæði á þessum vef og fleiri, en ég finn engar upplýsingar um hvort það sé mikið mál að breyta tölvunni ( boardcomputer ) yfir á ensku, staðinn fyrir þýsku.

Ég finn marga póst hér um hvernig eigi að gera það á E-32, E-38 og E-36 en ekkert um E-39. Þá er ég einnig búinn að leita á www.bmwtips.com, en hef ekkert fundið. Er þetta eitthvað mál?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. May 2005 16:42 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Þú ferð bara með bílinn í B&L og lætur þá skipta um tungumál fyrir þig... held að það sé ekki hægt að gera þetta öðruvísi. :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Vesen
PostPosted: Sun 01. May 2005 16:50 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Ach so.

Takk kærlega.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. May 2005 22:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Sæll Þórir...

Á ekkert að deila með okkur myndum og uppl. um gripinn sem er á leiðinni?
:wink:

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: E-39
PostPosted: Sun 01. May 2005 22:49 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Sæll og blessaður Eggert.

Já, maður gat ekki verið lengi BMW laus. Þetta jeppa dæmi var ekkert að gera sig, þannig að ég hafði samband við Smára í Hamburg og mjög fáum dögum síðar vorum við búnir að finna bíl sem uppfyllti kröfur mínar og sá gæðingur er kominn í skip og kemur vonandi til hafnar á miðvikudaginn.

Bíllinn er 523i, 1997 módel, ekinn 140 þús. km. en viðgerðarbók fylgir bílnum og hefur hann einungis verið þjónustaður hjá BMW. Bíllinn er með dökkblár með ljósgrárri leðurinnréttingu, virðist koma mjög vel út. Bíllinn er með topplúgu, sem og aðgerðarstýri, cruise control ( í stýri ), regnskynjara og svo þessum standard búnaði. Síðan kemur hann á orginal 16" felgunum, en ég er ekki enn ákveðin í hvað ég geri í þeim málefnunum.

Annars læt ég fylgja með myndir af gripnum frá því hann var settur í skip, ég veit lítið meira enda hef ég ekki séð hann enn, en vonandi fæ ég hann í hendurnar á föstudaginn næsta.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

kveðja.
Þórir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 01. May 2005 23:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Fallegur bíll. Algjört möst að hafa leður! 8)

En hvernig er það, hefði ekki borgað sig að kaupa felgur úti?

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: E39
PostPosted: Mon 02. May 2005 12:44 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Jú, eflaust. En ég vildi frekar fá bílinn en að bíða. Mér buðust nýjar BBS 18" en ég vill helst ekki hafa þennan bíl á 18, 17" er topps. Svo bjóðast mér líka aðrar 16" sem ég get notað undir vetrardekkin.

Þetta verður sweet.

Kveðja
Þórir I.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. May 2005 12:47 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. Jul 2004 19:09
Posts: 901
Til hamingju, þrusuflottur hjá þér ! 8)

_________________
Dóri
Image BMW 525i e34 '91 [SELDUR]
Image Opel Vectra CD 2.0 '97[Í notkun]


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. May 2005 13:48 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Takk fyrir það.

Ég var einmitt í umferðarstofu áðan að biðja um forskráningu. Fæ númer á morgun. Annars er ég bara kominn í barneignarfrí og við hjúin og erfinginn ætlum að halda upp á nýja bílinn með ferð á austur, eða á Eiða. Er viss um að bimminn á ekki eftir að svíkja mig á þeirri leið.

Maður er bara orðinn alveg sjúkur, manni hlakkar svo til að fá hann.

Ég set svo inn fleir myndir þegar ég verð búinn að fá afhent, bóna og þrífa.

Kveðja.
Þórir I.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. May 2005 14:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Átti svona bíl, reyndar beinskiptan. Bara alveg fínasti vagn.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 02. May 2005 15:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Bara flottur, og já, vonum að hann standist vonir.

En hvernig er það, þrátt fyrir soldið framboð af þessum bílum hérlendis, gastu gert góð kaup á þessu?

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Sælir
PostPosted: Mon 02. May 2005 20:23 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Jahh, framboð. Ég varð ekki var við það. Ég leitaði bæði á bilasölum og hér á vefnum en fann lítið. Það sem ég fann var annaðhvort ekki með þeim búnaði sem ég vildi eða óæskilegt annarra hluta vegna. :D

Þarna fæ ég bíl, kannski örlítið dýrari, en ég er þriðji eigandi að, kílómetratala er staðfest og bíllinn er eins og ég vill, búnaðarlega séð.

En ég er alveg að farast mig hlakkar svo til að fá hann. Verður gaman að eiga praktískan, skemmtilegan og fjölskylduvænan bíl, ekki oft sem það fer eins vel saman.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Sælir
PostPosted: Mon 02. May 2005 21:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Þórir wrote:
Jahh, framboð. Ég varð ekki var við það. Ég leitaði bæði á bilasölum og hér á vefnum en fann lítið. Það sem ég fann var annaðhvort ekki með þeim búnaði sem ég vildi eða óæskilegt annarra hluta vegna. :D

Þarna fæ ég bíl, kannski örlítið dýrari, en ég er þriðji eigandi að, kílómetratala er staðfest og bíllinn er eins og ég vill, búnaðarlega séð.

En ég er alveg að farast mig hlakkar svo til að fá hann. Verður gaman að eiga praktískan, skemmtilegan og fjölskylduvænan bíl, ekki oft sem það fer eins vel saman.


Ekki bara praktískur og fjölskylduvænn, heldur forstjóralegur og flottur bíll.
8)

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. May 2005 19:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
,,,,,,,,Yfir drifið nóg fyrir Íslenzkar aðstæður,,

og huggulegur bíll....

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. May 2005 02:45 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49
Posts: 446
Til hamingju með þetta, ég get ekki að því gert að mér finnst þetta lang fallegasta litasamsetningin.

Þú átt örugglega ekki eftir að verða svikinn af þessum.

Er eitthvað hægt að komast að því hvað þú borgar svo fyrir þetta?
Þætti vænt að fá að vita það svona gróflega, er nefnilega mikið að pæla í að gera svona hlut fyrir sjálfann mig.

_________________
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93



Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group