Zed III wrote:
Ég vona að ég sé að segja rétt frá þegar ég segi að það fari eftir aldri mótorsins (ég er annars ekki sérfróður og gæti verið að bulla). Ef þú færð t.d. m50b25 úr eldri bíl (ews i) þá er þetta ekki vandamál.
Ég er t.d. með m50b25 sem kom úr 91 árgerð og hún fór í bíl með ewsii (módel 96) án mikilla vandræða.
Tölvur ganga bara á þær vélartýpur sem þær eru forritaðar fyrir.
Endilega haltu áfram að spyrja þar til þú ert orðinn viss. Svona þráður mun hjálpa þeim sem á eftir koma og eru í sömu hugleiðingum.
Það er einmitt það sem ég var að hugsa... ef að ég skildi finna motor með öllu (rafkerfi,vélartölvu)
hvort að þetta yrði þá nokkuð vesen, en svo getur velverið að það gangi ekki upp að setja vélartölvu frá þeim motor í bílinn... allavega eins og ég var búinn að hugsa þetta og vantar þá svör við er: Ef að ég finn m50b25 með rafkerfi og vélartölvu, segjum bara að það sé úr eldri bíl semsagt með ews i, er það þá minna vesen? eða er kannski ekkert hægt að nota þá vélartölvu í bílinn hjá mér án þess að þurfa að programma eða eitthvað þessháttar.