fart wrote:
Hámarkshraði á Íslandi 100km/klst ..
Ég myndi fara í mjög hátt drif, 3.23 er fínt fyrir meginlandsakstur þar sem þú ert að krúsa á 130-150km/h.
Fyrir ísland og meira fjör myndi hærra hlutfall = meira gaman.
3.45 t.d.
Auðvitað ekki alveg að marka það, en ég er með 5speed kasas og 2.93 drif núna sem er fínt í autobahn krúsið, og fyrir mitt powerband. Hinsvegar sakna ég alltaf smá snerpunar sem var með 3.15 drifið, og mögulega fer ég aftur í það.
þú átt væntanlega við lægra hlutfall = meira gaman, hærri tala þýðir lægra hlutfall og öfugt
Laukrétt annars, ég keyri afar sjaldan út á land svo að ég ekkert mikið á krúsinu á 100km/h+ í þau örfáu skipti sem ég keyri á þeim hraða þá er allt í lagi að vera á smá snúning.
Ég hugsa að ég endi á því að taka stórt drif úr evo og breyta því svo í 3.45...
Er annars ekki oftast talað um að turbo bílar eigi að vera með að vera með hærra hlutfall en n/a bílar?
Sorry auðvitað meina ég lægra hlutfall....
Meira tog réttlætir oft hærra hlutfall.. S50B30/32 er lang skemmtilegastur á hærri snúningunum í NA formi. Ég er með meira afl við 3600rpm heldur en OEM mótor við redline.