Langar að spyrja Gst að því, hver er megin munurinn á Megasquirt II og VEMS, kostir og gallar, væri gott að fá þetta info frá pro fyrir menn sem eru að pæla í þessu???
Þegar ég var að pæla í MS vs vems 2008, þá var helsti munurinn betra hardware og minna bras á þessu. Það var sami hugbúnaður notaður til að tjúnna með en núna er sitthvor.. Vemstune er notað núna og er alveg hrikalega flott að mínu mati. Hef ekki fylgst með þróun mega squirt þannig að ég veit ekki hver munurinn er í dag.
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50 Posts: 15128 Location: Spenge, DE
Ég þekki bara MS II ekki það vel til að dæma það enn veit að það kemur bara með einum kveikju útgangi og þú þarft að bæta við í tölvuna til að fá meira. Ef eitthvað þá er VEMS líkari MS III sem þegar er tekið samann kostar þá $150 fyrir wideband controller og skynjara + $640 fyrir þessa útgáfu (http://www.diyautotune.com/catalog/mega ... p-435.html) þá er heildar verðið $790 , sem þarf svo að borga VSK af sem er þá 115k ef flutningur væri gefins. Þetta er orðið nógu svipað og VEMS kostar með wideband skynjara frá mér afhent á Íslandi. Og VEMS hefur fleiri options í þokkabót.
Enn ég veit að ég myndi undir engum kringumstæðum fá mér Megasquirt. Ég hef tjúnað nokkrar Megasquirt tölvur og tvær biluðu og fóru ekkert aftur í gagnið eftir viðgerð. Þar var sett VEMS í staðinn og kúnninn sáttur.
Hugbúnaðurinn sem er tengdur Megasquirt (Tunerstudio) er hannaður og supportaður af einum gaur. Ef hann myndi hætta þá myndi þetta allt stoppa í einhvern tíma, sem það gerði hálfpartinn í 3ár þegar MegaTune forritið fékk ekki fleiri uppfærslur því sá sem skrifaði það fór að gera eitthvað annað. Og mér sýnist hann vera farinn að rukka fyrir ólæsta útgáfu af Tunerstudio forritinu, og það kostar $50.
VEMStune hugbúnaðurinn er uppfærður í það minnsta einu sinni í mánuði eins og er. Og hugbúnaðurinn fyrir tölvuna álíka oft. Og hann er langtum betri enn Tunerstudio þótt VEMStune sé hvergi lagi orðið almennilega gott.
Hérna eru nokkur video af VEMStune í notkun. Og svo er meira info á íslensku á VEMS.is spjallinu þar sem ég veiti aðstoð fyrir þá sem nota VEMS á Íslandi. Þeir sem versla af mér VEMS fá ótakmarkað aðstoð við að nota VEMSið.
Ég man ekki orðið hvað eru margar VEMS tölvur á Íslandi enn það er mjög líklegt að hún sé vinsælasta standalone tölva landsins og virðist bara vera að sækja í.
_________________ With great challenges comes great engineering. Gunnar Reynisson
ok gott og vel en fyrir 82usd þá er hægt að bæta við MS2 þannig að maður er kominn með 4bar MAP-sensor og þrjá coil drivera, s.s nóg í 6cyl wasted spark og hærri MAP en í VEMS og menn hafa allavega tvö forrit til að velja úr til að keyra (megatune & Tunerstudio). Hvað hefur Vems umfram 4bar map og 3coil drivera Ms2?
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50 Posts: 15128 Location: Spenge, DE
Þú getur fengið 700kpa map skynjara ef þú vilt.
Þú getur ekki borið tölvur svona samann á hversu margir útgangar eru og gert ráð fyrir því að þær séu orðnar það sama. Það eru flestar tölvurnar sem ég hef selt með akkúrat 4bar map skynjara, 8 kveikju útgöngum(16cyl wasted) og 8 spíssa útgöngum , það dugar í 3bar boost svo þú skiljir það,
Þetta snýst mikið meira um hvað er hægt að gera með tölvunni sjálfri.
Ég þekki ekki alla fítusanna í MS2 eða MS3 enn hérna er eitthvað fyrir VEMS
Vemstune forritið
Getur tekið við GPS gögnum úr GPS tæki og loggað með því að logga tölvuna. Núna er víst hægt að tengja GPS inná tölvuna og logga á SD kort inní tölvunni og þarf þá engann lappa.
Getur tengst í serial tengið á tölvunni í gegnum TCP/IP , bráðlega get ég t.d tengst öðrum VEMStune forritum yfir internetið með því að slá inn IP töluna hjá viðkomandi og port.
Sjálfkrafa finnur hvaða firmware er verið að nota og setur upp alla menus eftir því
Sýnir alla stærðfræði á bakvið spíssa tíma og getur sýnt svipað fyrir aðra hluti, getur líka sýnt hröðunar mælir fyrir hvern cylinder, svoleiðis er auðvelt að finna missfire og á hvaða cyl það er , kallast individual power í vemstune.
Getur downloadað nýjum updates fyrir ný firmware og .ini skrár þegar forritið er sett í gang, þannig að það er alltaf up to date. Getur downloadað ný firmware í forritinu og installað beint úr forritinu nýtt firmware á tölvunni
Svo er auðvitað endalaust margir mismunandi "gauges" sem gerir manni kleyft að setja upp "mælaborðin" alveg eins og manni sýnist og eftir hentugleika. Kemur fram í einum af videounum.
Forritið lætur þig líka vita ef eitthvað í configinu er stillt vitlaust. Hellingu af öðru sem ég tek bara sem sjálfsögðum hlut.
Tölvan sjálf
Notar alvöru gæða tengla ekki einhverja serial tengla.
Antilag Launch control, kmh based launch control, N2O control, Check engine ljós eða warning ljós Boost control eftir gír og snúnings hraða, kmh eða bara vélar snúning, einnig stillanlegt utan frá með viðnámi Trans brake stillingar
Stillanlegur spíssa tími, þ.e hvenær spíssinn opnast Hægt að stilla hvern spíssa fyrir sig Hægt að stilla hvern neista tima fyrir sig
Alkyns safety fítusar, minna boost fyrir ofan X EGT eða lofthita, meira bensín fyrir ofan X EGT. Getur stýrt ventlakerfum í fullt af bílum Getur sent AiM protocol yfir í VEMS mæli eða AiM compatible mælaborð, þetta er þá fyrir keppnis bíla.
svo er hellingur af dóti sem ég er ekki að minnast á.
Það væri frekar ef þú finnur eitthvað sem þér finnst merkilegt í MS2 eða 3 þá gæti ég sagt hvort það sé hægt í VEMS.
_________________ With great challenges comes great engineering. Gunnar Reynisson
Users browsing this forum: No registered users and 10 guests
You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot delete your posts in this forum