DABBI SIG wrote:
iar wrote:
fart wrote:
það kemur sveitt klúnk þegar ég bakka
Þetta hljómar svipað og þegar drifið var laust hjá mér að framan (ekki í "eyrunum" að aftan). Þó kom einmitt "sveitt klúnk"

líka þegar ég var í 1. gír og sló af gjöfinni.
Laust að framan?
Meinarru þá að sjálf upphengjan hafi verið að gefa sig?
Einnig ef að það er svona víbríngs hljóð eða gnauður sem heyrist aftan úr bíl, gæti það þá verið drifskaptsupphengjan/legan í henni, eða gæti það verið hjólalega?
Já ég spyr eiginlega um sama, hvaða festing er að framan á drifinu? Annars er Guiboið GLÆNÝTT.
Ég er búinn að troubleshoota eftirfarandi.
1. að taka í handbremsuna á ferð breytir engu, en að er smá nudd í henni samt, massalítið
2. Hljóðið breytist við að að fara á og af gjöf og virðist vera mest í litlu átaki og er líka í engu átaki á ferð
3. ég tjakkaði upp og keyrði í gegnum gírana og þá heyrist þetta ekki
4. þegar ég kúpla inn Reverse með bílinn á lofti kemur smá sláttur, og það kemur sláttur þegar hann hreyfir dekkin á engri gjöf upptjakkaður en sá sláttur virðist koma úr gírkassanum (gæti verið flywheelið)
5. ég skoðaði allar festingar fyrir subframe og þær virðast óbrotnar (hef lent í því að rífa drif undan E36 325i Coupe áður í átökum og grunaði því það) en það er ekki
6. ég er náttúrulega með Powerflexxxx í öllu að aftan og því magnast öll hugsanleg hljóð upp
7. þegar ég sný dekkjunum kemur ekkert hljóð úr drifinu, og það er smá hlaup í báðum dekkjum í báðar áttir, er það normal.
8. þegar ég kúpla inn Reverse með bílinn á hjólunum kemur klúnk og dálítill víbringur, en það gæti líka veri að koma frá kúplingu og/eða flywheelinu.
Ég á eftir að tosa í drifskaftið, en ég ætla að byrja á því að setja 2.65 undir þegar það kemur og þá hef ég fínan aðgang að drifinu.