Jæja þá er vélin, kassinn og allt sem fylgir öllu klabbinu kominn í og vélin byrjuð að starta...
Er samt ekki að fá bensíndæluna til að fara í gang, hugsa að það sé vegna þess að það sé eitthvað öðruvísi system á þessu á nýju vélinni, einnig passa ekki nokkrir vírar saman í þessum tvem plöggum sem eru fyrri loomið
Veit einhver um eitthvað diy dæmi þar sem er lýst hvernig ég gæti fiffað þetta vandamál, stend nefnilega alveg á gati varðandi þetta, hélt að þetta væri bara plug'n play dæmi
Þetta var pretty straight forward dæmi og einfalt fyrir utan startaraboltana shit hvað þeir voru böggandi...
ég gat notað gamla vatnskassann, gírkassann og drifskaft.
Mótorinn smellpassaði á gömlu mótorpúðana, það aðeins að stilla gírkassapúðana af því að það var töluverður strekkingur á þeim.
Bensíngjafarbarkinn var alveg eins en bensínslöngurnar þarf að mixa aðeins.
Ekki passaði slangan úr stýrisdælunni í stýrismaskínuna því að það var töluvert sverari slangan á m52. Þarf einhvernvegin að fá hana notaða ur sum.
núna er bara eftir rafmagnsdótaríið og þá "ætti" hann vonandi að fara í gang.
Myndirnar gleymdust en get örugglega deilt reynslunni ef einhver vill það.