Ég fór með bílinn hans pabba og felgurnar eru allar tærðar að utan, þá sagði starfsmaður dekkjaverkstæðisins að það væri af því að vélarnar hefðu ekki verið stilltar á álfelgustillingu. Hann notaði þessa stillingu og það fóru engin lóð utaná felgurnar.
Svo fór ég með annan gang nýlega þá var annar starfsmaður farinn að lemja utaná felguna og ég bað hann um að setja á álfelgustillinguna og hann gerði það og ekki fleiri lóð utaná felguna.
Þegar lóð eru sett utaná felguna þá koma rispur í húðina og þá byrjar álið að tærast og húðin eyðileggst.
Þetta voru bara venjulegar felgur, jeppagangur og 16".
Þegar ég fer með e-ð stærra og flottara þá bið ég alltaf um að láta líma lóð innaná felguna.
Ég veit ekki mikið um þetta en mér finnst þetta með álfelguna vera mjög sniðugt!!!
Meira af lóðum að innan en þegar það er hægt að ballancera þannig þá finnst mér það vera eina vitið.