skylinee wrote:Verst að maður er peningalítill núna þar sem ég er nýbúinn að eyða 60þús í nýjann vatnskassa og nýja viftukúplingu
Hvort mæliði með að ég fari með hann niðrí B&L eða í TB til að komast að því hvað er að ?
Og kostar ekki svona bilanatékk ekki alveg marga peninga ?

60 þúsund kall er ansi stíft fyrir vatnskassa og viftukúplingu
Hlustaðu á Hlyn, kauptu þér eitthvað sleipiefni, eitthvað sem smyr
og þornar ekki (WD-40 er víst bara skammtímalausn í þessum efnum),
og taktu Idle Control Valve-ið þitt úr bílnum.
Aftengdu það, og losar allar slöngur og allt.
Sprauta vel af spreyinu inn í það, og jugga til ventlinum inní með puttunum bara.
Það mun leka mikið af drullu útúr þessu.
Láta allt sullið leka út, setja aftur í bílinn og sjá hvort hann gengur betur!