Ég er að velta því fyrir mér að skipta um alla 4 demparana. Ég hef lítinn áhuga á neinum performance dempurum bara orginal er fínt. Ég ætla líklegast að skipta um dempara að aftan sjálfur og láta BMW verkstæðið skipta um að framan.
Er eitthvað sérstakt sem ég þarf að varast við að gera þetta? Er betra að kaupa einhverja ákveðna dempara fyrir svona bíl sem er ekinn 150k? Ég skipti væntanlega um dempara að aftan fljótlega en dempararnir að framan eru í fínu lagi ennþá. Er betra að skipta um þetta allt í einu? Ég kem til með að skipta um upper mounting fyrir afturdemparann í leðininni, eitthvað annað?
Allar pælingar vel þegnar!
