Jæja, prufaði smá meira í kvöld..
Hann fór í gang við fyrsta snúning og gékk eðlilegan hægagang.
Prufaði að gefa inn í ca 3-4þ snúninga og hann gékk enþá eðlilega.
Þegar hann hitnaði hinsvegar, þá byrjaði hann að koka við 2500-3500 snúninga.
Skipti þá um bensínsíu bara svona afþví að ég átti hana til og hef alltaf ætlað mér að gera það en hann lét alveg eins.
Þá prufaði ég að bakka honum út og um leið og ég kom í smá halla, þá steindrapst á honum og hann fór ekki í gang.
Ýtti honum aftur inn og þá var hann frekar erfiður í gang en fór samt í gang.
Hann lét enþá alveg eins, kokandi í 2500-3500 snúninga.
Prufaði aftur að bakka honum í smá halla og hann hélst enþá í gangi.
Er að verða vitlaus á því að vera bíllaus

_________________
Kveðja, Eiður
8665409
BMW E30 325i '87 [FCKJDM]
BMW E30 300i '87
