Sælir. Ákvað nú að varpa fram nokrum sakleysislegum spurningum.
Bremsurör-
Ekki vill svo til að einhver man lengdirnar á rörum að aftan á 1993 e36 coupe. rörin báðu megin og stubbarnir við dælu(Minna mál að mæla þá en þægilegt ef einhver er með þetta). Ákvað að skipta bara um bæði rör, slöngur og stubba fyrst ég er að fara að lyfta draslinu og skipta um. Þá verður þetta gott í einhvern tíma. Er ekki best að fá þetta í stillingu?
Skrúfur,smellur, boltar og drasl-
Þar sem bíllinn hjá mér bara rétt hangir saman á svona þriðjungi af boltum, smellum og skrúfum sem eiga að vera þá er ég að spá hvar sé best að fá þetta dótarí?
Datt í hug TB eða bara hreinlega helvítis umboðið...nema ég nenni ekki að borga 18.000 kall fyrir bolta og ró til að festa stuðara. (Verð er byggt á verði á felgumiðjum í opelinn. 36.000 stykkið var mér sagt)
mest liggur á að fá boltann í ventlalokið sem sést þarna neðarlega, örlítið vinstramegin við miðju á myndini.
http://www.e36club.be/forum/e107_files/ ... s_copy.jpgöll svör eru mjög vel þegin

Það var ekki meira að sinni.
-RFS
_________________
BMW
E36 320 coupe verður gerður góður

Opel Astra OPC 2007 [COLOR="blue"] [RB-947][/COLOR]

Subaru Legacy 2008 [COLOR="blue"] [OH-V82][/COLOR] [gone]