Þar sem við flestir vitum að allir bílar í dag eru alltaf síbilandi aðallega útaf einhverjum skynjarabúnaði eða sambærilegu sem þarf að fá aflestur í tölvu til að vera snöggur að finna útur vandamálinu.
Ég keypti á dögunum bilanagreiningartölvu sem heitir ELM327, bluetooth. Verðið á henni er um það bil jafn mikið og 2 aflestrar á almennu verði hingað og þangað í kringum bæinn. (8-10 þús. kr)
Ég hef ekki prófað PC hugbúnaðinn með þessari vél, heldur bara tól í Android sem heitir torque og er mjög þægilegt.
Þessa græju hef ég prófað á eftirfarandi bílum:
VW Passat (virkaði ekki, fann illa protocol, en það virðist algengt ef maður er ekki með VAG tölvu)
VW Caddy (virkaði fínt á honum, gat fengið live upplýsingar og fl.)
Mazda 323 (virkaði fínt, live upplýsingar)
Renault Modus (fékk live upplýsingar illa uppfærðar, en gat villulesið hann auðveldlega)
Græjan supportar OBDII staðalinn, ég keypti svo einnig 38 pinna benz og 16 pinna sprinter kapla með þessu.
Ég á 2 svona græjur, svo ef einhverjum langar í aðra þeirra má hann endilega senda mér línu.
Mynd hér:
