Gunni, ég þarf bara að athuga hvort þetta gerist ef ég læt vélina bremsa niður í 3k rpm úr 45.
En annars gerði ég hljóðupptöku með símanum mínum í gær þar sem þetta heyrist í kringum 00:35-00:40 best:
http://myndasafn.bmwkraftur.is/v/medlim ... e_amr.htmlÞetta er í .amr og ég gat spilað með real player. Síminn tekur ekki upp í MP3.
Annars þarf ég greinilega að fara að kíkja á kertin og ventlaloks pakkningarnar og svona. Allar hosur eru í lagi svo hann virðist ekki vera að draga inn falskt loft. Spurning að kíkja með hann til Eðalbíla og láta tengja hann við tölvu til að athuga hvort einhverjir skynjarar eru að klikka, þó að það kemur ekkert check engine ljós.
Ef allt virðist í lagi þá skrifa ég þetta bara á útfærsluna á pústinu.