Jæja, ég er á bíl sem var fluttur inn 2007 af honum Danna djöful og ég veit ekkert um sögu bílsins eða hvað var gert við hann fyrir komu hingað til landsins.
Mig langar mig að fara í að kanna slithluti og þessháttar, ég hef mjög litla bílakunnáttu sjálfur og get þess ekki dæmt um hvað þarf að skipta um eða huga að.
Það sem ég hef gert við bílinn (e46 325i) síðan að ég fékk hann er:
Bremsuklossar
Bremsudiskar
Bremsuskynjarar
Skipt um hosu á inntakinu (Það var kominn rifa)
Smurður á 4-5.000Km fresti með Mobil1 og alltaf skipt um olíusíu.
Svo var maður hérna á kraftnum sem tók að sér smá verk:
Skipti um 2 pakkningar á gírkassa (lak olía)
Og setti nýja olíu á gírkassa og nýja olíu á drif og það var gert í kringum 110.000Km
Annað hef ég ekki gert og ekki þurft að gera vegna þess að mér fynst hann hafi ekki misst neina aksturseiginleika.
Ég er búinn að kaupa ný kerti í bílinn, ég veit ekki hvenær þau voru skipt um seinast en mér fanst vera kominn tími á þau.
Bíllinn var ekinn 97.000Km þegar ég fékk hann 2007 og núna 4 árum seinna er hann ekinn 122.000.
Mig langaði bara að forvitnast hvað er það helsta sem þarf að skipta um og hvað þarf að huga að mest. Hvert get ég farið með bílinn án þess að kafa djúpt ofaní veskið fyrir tilturlega "ÍTARLEGT" inspection ?
Flott væri ef einhver hérna á kraftinumm væri til að taka þetta að sér, mér fynnst ekkert betra en styrkja kraftsmenn með smá svörtum vasapening

-Jónas