Ég á 320 2008 módel með 170 hestafla mótornum. Ég er algjört noob í svona pælingum og skipti helst ekki um dekk án þess að hringja í fíb
Svo ég var að spegúlera, er mikið mál að fá aðeins meira trukk út úr þessum mótor án þess að það kosti hvítuna úr augunum ?
Væri sáttur með að fara aðeins yfir 200 hestana.
Með fyrirfram þökk
Geiri


