Sælir.
Þónokkuð bank hefur verið að koma frá mótornum í bílnum hjá mér, giska á að það séu undirlyfturnar. Er búinn að prófa að setja sjálfskiptivökva útí smurolíuna og einnig Prolong bætiefnið síðast þegar ég smurði bílinn, virtist í smástund batna en hefur bara versnað svo aftur.
Býst við að til að losna við þetta endemis bank þurfi að skipta um undirlyfturnar.
Er mikið mál og mikill kostnaður við að skipta um undirlyftur í e 36 ? (323i) Eru einhverjir eftir hér á spjallinu sem eru með aðstöðu og geta tekið slíka aðgerð að sér ?
_________________ BMW e39 525D ´2001 BMW e36 323i '96 BMW e36 320i '92 - Seldur BMW e36 316i '95 - Seldur
|